Söngleikurinn Hunangsflugur og villikettir fékk frábæra dóma á vefsíðu Skessuhorns en þar segir:
,,Hunangsflugur og villikettir - Leiksigur í Grundaskóla.Það er óhætt að segja að það hafi verið stór stund í sögu Grundaskóla á Akranesi í gær, laugardag þegar frumsýning á söngleiknum Hunangsflugum og Villiköttum fór þar fram fyrir troðfullu húsi. Enn á ný sönnuðu nemendur og starfsfólk með ótvíræðum hætti hversu feikiöflugur skóli þetta er. Sýningin var í alla staði frábær hvort heldur sem um er að ræða handrit, tónlist, leikstjórn, leikræna tilburði eða samþættingu allra þessara þátta." Til hamingju, Grundaskóli!
Sýningar verða sem hér segir: