ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
26. október 2005 12:05

Samið við Golfklúbbinn Leyni

F.v. Brynjar Sæmundsson, Heimir Gunnlaugsson, Gísli Gíslason og Hörður Kári Jóhannesson
Bæjarstjórn Akraness hefur samþykkt samninga við Golfklúbbinn Leyni um rekstur Garðavallar og uppbyggingu hans og voru þeir undirritaðir s.l. föstudag. Rekstrarsamningurinn gerir ráð fyrir árlegu framlagi Akraneskaupstaðar til klúbbsins að fjárhæð fimm milljónir króna til reksturs golfvallarins að Görðum, vegna daglegs reksturs fasteigna, véla, hirðingar golfbrauta og annars sem til fellur á hverjum tíma.  Í samningnum er einnig gert ráð fyrir að Golfklúbburinn annist, án endurgjalds, golfkennslu fyrir a.m.k. einn árgang grunnskólanna á ári hverju, viku í senn.  Samningurinn gildir til loka árs 2008.

 

 

 

Framkvæmdasamningurinn gerir ráð fyrir árlegu framlagi til ársins 2009 að fjárhæð 7,8 milljónir króna vegna framkvæmda við æfingaskýli ásamt kaupum á vélum og búnaði til reksturs vallarins.  Markmið Akraneskaupstaðar með því að styrkja Golfklúbbinn Leyni í uppbyggingu Golfvallarins að Görðum er að tryggja börnum og unglingum á Akranesi góða aðstöðu til iðkunar golfíþróttarinnar og til að skapa góða aðstöðu fyrir þá sem stunda golf sem keppnisíþrótt, enda golf vaxandi almenningsíþrótt á Akranesi og mikilvægur þáttur í afþreyingu fyrir ferðamenn og aðdráttarafl fyrir gesti sem koma til Akraness.   

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008