Samtök dagforeldra á Akranesi hafa ákveðið hækkun á gjaldskrá sinni um 4,5% frá 1. september n.k. Gjaldskráin er einungis ætluð til nota fyrir dagforeldra sem hafa leyfi félagsmálaráðs Akraness til að taka börn í daggæslu. Öðrum er óheimilt að taka börn í gæslu gegn gjaldi. Dagforeldrum ber skylda til að sýna foreldrum gjaldskrána og gera þeim grein fyrir einstökum liðum hennar þegar barn byrjar í daggæslu.