ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
1. júní 2005 11:48

Sjómannadagshátíð Teigasels

Leikskólabörnin ætla m.a. að ganga um bryggjuna og skoða bátana.

Á föstudag verður haldin sjómannadagshátíð í leikskólanum Teigaseli. Hátíðin verður haldin á hafnarsvæðinu bæði fyrir og eftir hádegi á föstudag. Meðal dagskrárliða eru fjöldasöngur í brekkunni, reiptog, pokahlaup, hópleikurinn "Jón í kassagerðinni" og fleira auk þess sem gengið verður um svæðið og bátarnir skoðaðir.

Tilgangur hátíðarinnar er fyrst og fremst að kynna þennan merka dag fyrir leikskólabörnunum.

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008