3. janúar 2005 09:21
Rammasamningur um innheimtuþjónustu
Nýjung hjá sveitarfélögum
Í lok síðasta árs var gengið frá rammasamningi um innheimtuþjónustu Akraneskaupstaðar við Landsbankann á Akranesi. Samningurinn tryggir Akraneskaupstað að allar innheimtukröfur verða birtar í kröfukerfi Landsbankans og eiga viðskiptavinir Akraneskaupstaðar þá möguleika á að skoða reikninga sína í heimabanka sínum og greiða beint án þess að þurfa að gera sér sérstakt erindi í bankaútibú sitt.
Einnig gerir samningurinn ráð fyrir að í upphafi árs 2005 geti launþegar kaupstaðarins séð launaseðla sína í heimabanka sínum og þar með losnað við hina hefðbundnu launaseðla og það pappírsflóð sem þeim fylgir, en heimabankinn gerir einmitt ráð fyrir miklum pappírssparnaði í anda Staðardagsskrár 21 sem Akraneskaupstaður er aðili að.
Þessar breytingar eru nýjungar í rekstri sveitarfélaga og ekki annað vitað en að Akraneskaupstaður sé fyrsta sveitarfélag landsins sem innleiðir þessa þjónustu. Á meðfylgjandi mynd má sjá Jón Pálma Pálsson, bæjarritara og Birgir B. Jónsson, bankastjóra Landsbankans á Akranesi handsala samkomulagið.