Fimmtudaginn 9. desember kl. 20 verður aðventukvöld við arineld í Listasetrinu Kirkjuhvoli. Þar munu fimm Skagamenn lesa jólasögur sem þeir hafa valið sjálfir. Þeir sem lesa eru: Helga Viðarsdóttir, Kristjana Kristjánsdóttir, Kristján Kristjánsson, Steinunn Sigurðardóttir og Trausti Gylfason. Í hléi verður flutt jólatónlist frá nemendum Tónlistarskólans á Akranesi og að sjálfsögðu verður kveikt upp í arninum og boðið upp á kaffi og piparkökur. Aðgangseyrir er kr. 800.-