Útlán Bæjar- og héraðsbókasafnsins á síðasta ári voru 56.927 og er það töluverð aukning frá árinu áður en þá voru útlánin 52.822. Fjöldi virkra lánþega var 2.132. Íbúar á Akranesi 1. des. s.l. voru 5.517 og eru því um 40% íbúa notendur safnsins. Útlán pr. íbúa eru 10.3 bindi. Þessi tala verður aðeins lægri ef við miðum við Akranes og svæðið sunnan Skarðsheiðar, sem er í raun þjónustusvæði Bæjar- og héraðsbókasafnins. Íbúatala á svæðinu er 6.072.