ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
9. ágúst 2012 17:09

Lokanir vegna flutnings tölvubúnaðar Akraneskaupstaðar

Vegna vinnu við flutning tölvubúnaðar Akraneskaupstaðar og stofnana helgina 10.-12. ágúst verður bæjarskrifstofan lokuð frá kl. 14:00 föstudaginn 10. ágúst nk. Miðlæg tölvukerfi og internetsamband hjá öllum stofnunum kaupstaðarins munu liggja niðri, en áætlað er að tengingar verði komnar á að nýju á mánudag.

Sérstök athygli er vakin á því að  símasambandslaust verður við bæjarskrifstofur, leikskólann Akrasel og Bókasafn Akraness frá kl. 15:00 föstud. 10. ágúst. 

 Umsækjendum um atvinnu er bent á að senda rafrænar umsóknir eftir helgi og/eða fylgja vel eftir hvort staðfesting á umsókn berst umsækjanda.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokanir þessar kunna að valda.

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008