13. júlí 2012 09:04
AFSTAÐA - af STAÐ: Sýning í Garðalundi
Menningarráð Vesturlands og Akraneskaupstaður í samvinnu við 11 listamenn standa fyrir sýningunni AFSTAÐA – af STAÐ í Skógræktinni á Akranesi. Þar verða sýnd umhverfislistaverk unnin út frá stoðum sjálfbærrar þróunar.
Árið 2008 var vel heppnuð sýning í Jafnaskarðsskógi við Hreðavatn í Norðurárdal þar sem listamenn af Vesturlandi sýndu verk sem þeir unnu í skóginum. Sú sýning var samstarfsverkefni Menningarráðs Vesturlands, Skógræktar ríkisins á Vesturlandi og listamanna sem unnu verkin. Í ár var áhugi hjá Menningarráði á að vinna að samskonar verkefni en í skógræktinni, Garðalundi á Akranesi og þá í samstarfi við Akraneskaupstað. Valið er líka ánægjulegt vegna þess að í ár fagnar bærinn 70 ára afmæli.
Sýningin opnar laugardaginn 14. júlí kl 14.00 og stendur út september með það í huga að skólahópar geti skoðað og nýtt sér sýninguna. Sunnudaginn 15. júli verður námskeiðið Listasmiðja náttúrunnar fyrir einstaklinga og fjölskyldur í boði Menningarráðs Vesturlands. Mæting er við Safnaskálann kl 15.00.
Bæjarbúar sem og aðrir eru hvattir til að mæta á opnun sýningarinnar í Garðalundi kl. 14:00 á laugardaginn.