ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
22. júní 2012 10:24

Sveinn Arnar Sæmundsson er bæjarlistamaður Akraness árið 2012

Á hátíðarsamkomu í Garðalundi á þjóðhátíðardaginn þann 17. júní sl. var tilkynnt að Sveinn Arnar Sæmundsson, organisti í Akraneskirkju yrði bæjarlistamaður Akraness árið 2012 en svo skemmtilega vildi til að Sveinn Arnar tók þátt í hátíðarhöldunum sem undirleikari Hönnu Þóru Guðbrandsdóttur, sópransöngkonu sem var bæjarlistamaður Akraness árið 2011.

Sveinn Arnar hefur verið áberandi í tónlistarlífinu á Akranesi á undanförnum árum en hann hefur m.a. stjórnað afar öflugu kórastarfi í Akraneskirkju auk þess sem hann hefur stjórnað fleiri kórum og komið fram í tengslum við hina ýmsu tónlistarviðburði.  Sveinn Arnar er því vel að þessari tilnefningu kominn.

Sveinn Arnar hóf nám í píanóleik ungur að árum í Tónlistarskóla Skagafjarðar hjá Stefáni R. Gíslasyni. Árið 1994 hóf hann nám í orgelleik við Tónlistarkóla Akureyrar hjá Birni Steinari Sólbergssyni og vorið 1999 lauk hann 8. stigi í orgelleik, þá undir handleiðslu Eyþórs Inga Jónssonar. Sveinn Arnar stundaði kirkjutónlistarnám  við Tónskóla þjóðkirkjunnar þar sem orgelkennarar hans voru Hörður Áskelsson og Björn Steinar Sólbergsson. Hann  útskrifaðist með kantorspróf þaðan haustið 2006 og einleiksáfanga frá sama skóla vorið 2010. Arnar hefur sótt námsskeið í kórstjórn og orgelleik, bæði hér heima og erlendis m.a. annars hjá Mathias Wager, Lasse Ewerlöf, Dan-Olof Stenlund, Hákoni Leifssyni og Guðmundi Óla Gunnarssyni.
Frá árinu 2002 hefur hann verið organisti  og kórsstjóri við Akraneskirkju. Einnig hefur hann stjórnað Kammerkór Akraness frá árinu 2004.

 

 

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íbúakönnun 2013 Íslensku vefverðlaunin 2008