Dagskrá laugardagsins hefst með sandkastalakeppni og dorgveiðikeppni en aðrir hefðbundnir liðir eru á sínum stað í bland við nýja viðburði. Nefna má markaðinn sívinsæla sem verður í Akraneshöll og tívolí við Íþróttamiðstöðina á Jaðarsbökkum en fregnir herma að það verði óvenju glæsilegt í ár. Bílasýning verður við Stjórnsýsluhúsið og mýrarbolti við Garðalund, keppnin um reuðhærðasta Íslendinginn o.fl. o.fl. Um kvöldið verður svo hitað upp fyrir Lopapeysuballið með brekkusöng við þyrlupallinn á Jaðarsbökkum.
Dagskrá Írskra daga lýkur svo á sunnudeginum með leiksýningu í Garðalundi en þar verður boðið upp á leiksýninguna vinsælu Gói og baunagrasið.
Nánari dagskrá Írskra daga verður sett í loftið síðar í vikunni, á vef Akraneskaupstaðar og á vef hátíðarinnar, irskirdagar.is.
Ástæða er til að hvetja alla Skagamenn, einstaklinga, félagasamtök og fyrirtæki til að taka virkan þátt í hátíðinni og undirbúningi hennar, skreyta snemma og skapa þannig þá bráðskemmtilegu stemningu sem gjarnan fylgir hátíðinni.