Eins og fram kom í ávarpi Árna Múla Jónassonar, bæjarstjóra á Akranesi í hátíðarræðu á þjóðhátíðardaginn þann 17. júní sl. hefur verið ákveðið að ráðast í viðgerðir á Gamla vitanum á Suðurflös, að utan jafnt sem innan og verður verkefnið boðið út innan fárra daga. Gamli vitinn, sem er elsti steinsteypti vitinn við Íslandsstrendur og reistur árið 1917, er illa farinn og því mikilvægt að koma honum til bjargar. Stefnt er að því að klára endurbætur utan húss í sumar og hefja endurbætur innan húss í framhaldi af því.
Þetta verkefni hefði ekki verið mögulegt án rausnarlegs stuðnings frá afkomendum hjónanna frá Bræðraparti á Breið, þeirra Jóns Gunnlaugssonar og Guðlaugar Gunnlaugsdóttur en stofnaður var um þau sérstakur minningarsjóður á sínum tíma og mun sjóðurinn standa straum af kostnaði vegna viðgerðar á vitanum. Fer vel á því þar sem Jón var á sinni tíð vitavörður á Akranesi í hartnær hálfa öld. Þessi höfðinglegi stuðningur afkomenda hjónanna frá Bræðraparti er til marks um þann hlýhug sem þeir bera til Breiðarinnar og Gamla vitans en ekki síður til þeirra fjölmörgu Akurnesinga og gesta sem heimsækja Breiðina og vitann á degi hverjum.