ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
16. júní 2012 22:24

Dúmbó og Steini koma saman á ný

Hátíðarhöld í tilefni af 17. júni verða fjölbreytt og glæsileg á Akranesi í ár í tilefni af því að 70 ár eru liðin frá því að Akranes hlaut kaupstaðaréttindi. Dagskráin hefst á Safnasvæðinu að morgni þjóðhátíðardagsins en aðalhátíðarhöldin verða í Garðalundi. Þangað verður gengið í skrúðgöngu sem leggur af stað frá Íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum kl. 13:30. Meðal dagskrárliða í Garðalundi má nefna að hin ástsæla hljómsveit Skagamanna, Dúmbó og Steini kemur saman í tilefni af afmælinu og flytur nokkur lög á hátíðardagskrá sem fram fer í Garðalundi á milli kl. 14:00 og 16:00. Gera má ráð fyrir að hið fræga 17. júní lag hljómsveitarinnar “Hæ, hó, jibbí jei...” verði sungið þar fullum hálsi auk annarra smella þessarar frægustu hljómsveitar Skagamanna. Í Garðalundi verður fjölbreytt dagskrá í boði, leikir og margt fleira. Auk þess býður Akraneskaupstaður gestum og gangandi upp á pylsugrillveislu – á meðan birgðir endast!
Um kvöldið verða útitónleikar í Garðalundi þar sem Queen dagskráin með Matta Matt og Magna er meðal dagskrárliða en þar verða einnig My Sweet Baklava, Klint og Jimmy Hendrix Show. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00.
Dagskrá 17. júní á Akranesi má skoða hér á vef Akraneskaupstaðar.

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008