17. júní á Akranesi
Glæsileg hátíðardagskrá í tilefni af 70 ára afmæli Akraneskaupstaðar.
Föstudagur 15. júní
07:00 Safnaskálinn opnaður. Morgunverður í Garðakaffi. Opið til miðnættis.
Hoppkastalar á svæðinu neðan við Akraneshöll. Tilvalið að kíkja á stemninguna á Norðurálsmótinu um leið.
20:00 Akranesvöllur - ÍA - ÍBV. Allir á völlinn!
Laugardagur 16. júní
07:00 Safnaskálinn opnaður. Morgunverður í Garðakaffi. Skálinn verður opinn til miðnættis.
Hoppkastalar á svæðinu neðan við Akraneshöll. Tilvalið að kíkja á stemninguna á Norðurálsmótinu um leið.
10:00 – 16:00 Listasmiðja við Langasand á Norðurálsmóti
Eigum saman skemmtilega stund málum, teiknum og litum. Allt efni er á staðnum og það eina sem þarf að gera er að mæta með sköpunargleðina og hefjast handa! Aðgangur ókeypis! Fyrir alla fjölskylduna!
10:00 – 16:00 Leikjaland við Langasand á Norðurálsmóti
Akraneskaupstaður og stelpurnar hjá „Alltaf Gaman“ bjóða gestum og gangandi í alls konar leiki fyrir alla fjölskylduna á svæðinu neðan við Akraneshöll, við Aggapall á Jaðarsbökkum og á Langasandinum sjálfum. Settar verða upp leikjastöðvar þar sem boðið verður upp á alls konar leiki s.s. kubb, knattþrautir, skotboltasvæði/höfðingjaleik, hornareiptog, kastleiki s.s. skeifukast, skóflur og fötur fyrir Langasand, sippibönd og snú-snúbönd, teygjutvist, krítar fyrir stéttarnar og Mikadó. Ný og glæsileg dótakista á Aggapalli, full af flottu dóti fyrir Langasand. Öllum er frjálst að vera með og aðgangur er ókeypis!
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní
10:00 - 14:00 Þjóðlegur morgunn á Safnasvæðinu
Þjóðlegar veitingar í Garðakaffi
Opið og ókeypis aðgangur í söfnin
Gestir sem mæta í þjóðbúningi fá óvæntan glaðning
Hanna Þóra Guðbrandsdóttir sópransöngkona syngur nokkur lög kl. 10:30 og 11:30. Undirleik annast Sveinn Arnar Sæmundsson.
Boðið verður upp á andlitsmálun, ekta 17. júní blöðrur og nammi til sölu og fleira skemmtilegt.
13:00 Safnaskálinn á Safnasvæðinu – „Leikur að litum“
Jóhanna L. Jónsdóttir sýnir olíumálverk í sýningarsalnum í Safnaskálanum.
13:00 Hátíðarguðsþjónusta í Akraneskirkju
Sr. Kristinn Jens Sigurþórsson messar.
Hátíðarræðu flytur Kristín Björk Lárusdóttir, nýstúdent.
14:00 - 17:00 Kaffisala Kirkjunefndar Akraneskirkju í safnaðarheimilinu Vinaminni.
14:00- 16:00 Hátíðardagskrá og fjölskylduskemmtun í Garðalundi
Fánahylling í umsjón Skátafélags Akraness. Blásarar úr Skólahljómsveit Akraness leika undir.
Ávarp Árna Múla Jónassonar, bæjarstjóra á Akranesi.
Ávarp fjallkonu – Aldís Birna Róbertsdóttir
Þjóðsöngurinn - Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, sópransöngkona syngur, undirleik annast Sveinn Arnar Sæmundsson.
Að lokinni hátíðardagskrá tekur við fjölbreytt skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna í Garðalundi - hoppkastalar, andlitsmálun, leikir og skemmtun.
„Grease“. Nemendur í 7. bekk Brekkubæjarskóla flytja atriði úr söngleiknum Grease
Kór Grundaskóla kemur fram og syngur nokkur lög
Dansatriði frá Dansstúdíói Írisar
Hjördís Tinna Pálmadóttir sigurvegari í söngkeppni Samfés á Vesturlandi syngur
Söngleikir í Grundaskóla. Flutt verða lög úr söngleikjum Grundaskóla í gegnum tíðina en skólinn fékk nýlega viðurkenningu Heimilis og skóla fyrir þetta frábæra framtak
Dúmbó og Steini. Hljómsveitin Dúmbó og Steini kemur fram í fyrsta skipti í langan tíma
Kristinn Gauti Gunnarsson töframaður sýnir töfrabrögð.
14:00 – 16:00 Garðalundur – Leikjaland!
„Alltaf Gaman“ verður með alls konar leiki fyrir alla fjölskylduna s.s. kubb, kastleiki, hreystibraut og Hornareiptog. Öllum er frjálst að vera með og aðgangur er ókeypis!
14:30 – 16:30 Garðalundur - Listasmiðja!
Málum, litum, klippum og teiknum. Boðið verður upp á að út búa skjöld með skjaldarmerki Akraneskaupstaðar eða hátíðarmerki Akraneskaupstaðar í tilefni dagsins. Aðgangur ókeypis! Fyrir alla fjölskylduna!
Afmælisveisla í boði Akraneskaupstaðar!
Grillaðar pylsur og gos fyrir gesti og gangandi í tilefni af 70 ára afmæli Akraneskaupstaðar
Andlitsmálun og hoppkastalar
Skátarnir annast veitingasölu og sjá til þess að allir fái nammi og blöðru í tilefni dagsins
Fólki er bent á bílastæði við golfvöll, á Safnasvæðinu og í nýja hverfinu við Garðalund.
16:00 Listasetrið Kirkjuhvoll - „Úr ýmsum áttum"
Gyða L. Jónsdóttir sýnir olíumálverk í Listasetrinu Kirkjuhvoli. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 14:00 – 17:00.
20:00 Skagarokk - Kvöldskemmtun í Garðalundi
Best of Queen! Mattías Mattíasson & Magni Ásgeirsson ásamt hljómsveit
My sweet Baklava
Klint
Jimmy Hendrix Project
Kynnir er okkar eini og sanni Hallgrímur Ólafsson, leikari
Ekta Woodstock stemning, grillið klárt ef fólk vill henda á það.
Gleðilega Þjóðhátíð!
Akraneskaupstaður
Auglýsing með dagskrá hátíðarhalda á 17. júní.