ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
8. júní 2012 15:29

Skemmtileg heimsókn frá Grundaskóla

Hópur barna úr Grundaskóla kom í dag í heimsókn á bæjarskrifstofuna að Stillholti ásamt kennurum sínum en undanfarna daga hafa þau unnið að sérstöku verkefni í tengslum við vordaga í Grundaskóla en þá er nemendum boðið upp á margvísleg viðfangsefni.

Krakkarnir tóku þátt í verkefninu „Ólík en frábær!", þar sem börnum í 1.-3. bekk gafst tækifæri til að upplifa að það séu ekki allir eins og að stundum þurfi að fara ólíkar leiðir til þess að leysa ákveðin verkefni.

 Börnin fengu að prófa að fara um á hjólastól, ganga á hækjum, upplifa að vera blind með bundið fyrir augun og með blindrastaf.  Þannig var reynt að láta börnin upplifa það að það sem einum finnst minniháttar hindrun getur verið verulegur vegartálmi fyrir einhvern annan.

 Eins og fram kom í máli kennaranna sem komu í heimsókn með krökkunum vonast þeir til þess að geta hjálpað börnunum að átta sig betur á fjölbreytileika mannlífsins, að skilja betur hvernig gott aðgengi getur stuðlað að þátttöku allra og að vera meðvitaðri um umhverfið sitt.

M.a. var farið á Langasand og börnin upplifðu það hversu erfitt eða nær ómögulegt er að komast niður á sand í hjólastól og að ýmsar hindrarnir voru á vegi þeirra.  Einnig var farið í Skógræktina og í gamla miðbæinn.

Tilgangur heimsóknarinnar var að afhenda skýrslu þar sem fram kemur hvað er vel gert á Akranesi í þessum efnum og einnig koma þar fram ábendingar um hvað betur megi fara og hvað megi laga til þess að allir geti farið um og tekið þátt.

Smellið hér til að skoða skýrslu sem börnin gerðu í tengslum við verkefnið.

Einnig var gerð stuttmynd um ferðir barnanna um bæinn í hjólastólum, með blindrastafi og á hækjum, Smellið hér til að skoða stuttmyndina. 

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008