ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
3. maí 2012 09:39

Útboð á hýsingu og rekstri miðlægs tölvuumhverfis Akraneskaupstaðar

Auglýsing um útboð:

Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í verkið:
Akraneskaupstaður
Útboð
Hýsing og rekstur miðlægs búnaðar og útstöðva
Afritun
Rekstur netkerfis

Verkið er fólgið í hýsingu og rekstri miðlægs tölvuumhverfis Akraneskaupstaðar og stofnana hans, þjónustu við notendur og vegna útstöðva og prentara, afritun og endurheimt gagna svo og rekstur netkerfis og IP-símstöðvar. Verkið er boðið út í eftirfarandi hlutum, sem hver um sig verður metin sérstaklega:

•         Hýsing og rekstur miðlægs búnaðar og útstöðva
•         Afritun gagna miðlægs búnaðar
•         Rekstur netkerfis

Samningur verður gerður til þriggja ára við þá aðila sem gerir hagstæðasta tilboð í hvern hluta miðað við uppgefnar kröfur og matslíkan.
Möguleiki er á framlengingu samnings til eins árs í senn, að hámarki 2 ár.

Upphaf verks skal vera í lok ágúst 2012.
Útboðsgögn verða afhent  á skrifstofu Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18,  300 Akranesi, frá hádegi miðvikudaginn 2. maí 2012.

Verð útboðsgagna er kr.  2000.

Útboðsgögn er einnig hægt að nálgast ókeypis á heimasíðu Akraneskaupstaðar á rafrænu formi: Útboðsgögn

Tilboð verða opnuð á á skrifstofu Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18,  300 Akranesi, föstudaginn 22. júní 2012 kl 14:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
 Þeir sem sækja úboðsgögn á netinu eru vinsamlega beðnir um að staðfesta það með tölvupósti til ragnheidur.thordardottir@akranes.is, svo hægt sé að láta vita ef breytingar verða á útboðsgögnum.
 
Sérstök athygli er vakin á því að opinn kynningarfundur fyrir bjóðendur um útboðið verður haldinn þriðjudaginn 22.maí kl 10:00 á skrifstofu Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 300 Akranesi . 

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íbúakönnun 2013 Íslensku vefverðlaunin 2008