ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
30. apríl 2012 09:47

900 sumarstörf fyrir námsmenn og atvinnuleitendur

Velferðarráðuneytið og Vinnumálastofnun auglýsa 500 sumarstörf fyrir námsmenn laus til umsóknar í átaksverkefni ráðuneyta og stofnana þeirra. Sveitarfélög bjóða einnig sumarstörf fyrir námsmenn og atvinnuleitendur á grundvelli verkefnisins og eru störf á þeirra vegum um 400.

Opnað verður fyrir umsóknir á vef Vinnumálastofnunar mánudaginn 30. apríl. Á heimasíðu Vinnumálastofnunnar er einnig hægt að finna yfirlit yfir þau sveitarfélög sem bjóða um 400 sumarstörf fyrir námsmenn og atvinnuleitendur á grunni þessa verkefnis.

Ráðningartíminn er tveir mánuðir í júní og júlí. Skilyrði fyrir ráðningu námsmanna er að þeir séu á milli anna í námi en atvinnuleitendur þurfa að vera á skrá Vinnumálastofnunar með staðfestan bótarétt. Frestur til að sækja um störf er til 14. maí.  Stefnt er að því að ljúka ráðningum um miðjan maí.

Nánari upplýsingar eru á vef Vinnumálastofnunar.

 

(frétt af vef velferðarráðuneytisins) 

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008