ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
14. október 2011 19:32

Dagskrá Vökudaga 2011 komin á netið!

Menningar- og listahátíðin Vökudagar verður haldin á Akranesi dagana 27. október til 6. nóvember næstkomandi og er hátíðin fjölbreytt að vanda.

 

Smellið hér til að skoða rafræna útgáfa af kynningarbæklingi með dagskrá Vökudaga 2011.

 

Nefna má ljósmyndasýningu í Bókasafni Akraness, „Fuglarnir okkar“ þar sem til sýnis eru ljósmyndir sem hjónin Helga Guðmundsdóttir  og  Ingi Steinar Gunnlaugsson hafa tekið af fuglum á undangengnum árum og sýningu leikskólans Garðasels á Heilsugæslustöðinni, „Það sem auga mitt sér“ sem er ljósmyndasýning elstu barnanna á leikskólanum Garðaseli.

Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, sópransöngkona og bæjarlistamaður Akraness 2011 heldur tónleika í Vinaminni að kvöldi fimmtudagsins 27. október þar sem hún mun líta yfir farinn veg og syngja lögin sem hún hefur verið að syngja í gegnum tíðina í bland við uppáhaldslögin sín, alls konar lög úr öllum áttum. Síðar um kvöldið verða tónleikar í Tónbergi með Jazzkvintett ásamt söngkonunni Eddu Borg.

Meðal annarra viðburða má nefna ráðstefnu um fjölmenningu, „Brjótum múra“, sem haldin verður í Tónbergi 4. og 5. nóvember og hina árlegu Þjóðahátíð í framhaldi af henni.

Svona má áfram telja. Nú er unnið að lokaskipulagningu hátíðarinnar en frestur til að tilkynna um viðburði á hátíðinni rennur út á miðnætti þriðjudaginn 18. október nk.

Dagskrá Vökudaga verður borin í öll hús á Akranesi á næstunni og er fólk hvatt til að fylgjast vel með og taka virkan þátt í hátíðinni auk þess sem hægt er að skoða dagskrána með því að smella hér. Á forsíðu akranes.is er einnig hnappur sem á stendur "Vökudagar", ofarlega hægra megin á síðunni, en hægt er að skoða dagskrána með því að smella á hnappinn.

 

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008