ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
15. janúar 2004 10:13

Ekki mikil kirkjusókn yfir hátíðarnar?

Samkvæmt niðurstöðu spurningar vikunnar á vef Akraneskaupstaðar, dagana 5.-12. janúar, virðast gestir heimasíðunnar ekki hafa sótt messur yfir jól og áramót.  Spurt var, fórst þú í kirkju yfir hátíðarnar?  Alls svöruðu um 150 manns og var niðurstaðan sú að eingöngu 32% svöruðu játandi og 68% neitandi.  Að sögn Indriða Valdimarssonar, starfsmanns Akraneskirkju, var kirkjusókn ekki minni yfir hátíðarnar í ár en fyrir ári og jafnvel meiri.  Kirkjugestir eru á öllum aldri en stór hópur kirkjugesta er eldra fólk.  Því virðist vera að niðurstaða þessarar spurningar á vef Akraneskaupstaðar endurspegli ekki kirkjusókn Akurnesinga.   

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íbúakönnun 2013 Íslensku vefverðlaunin 2008