Velferðarráðuneytið og Vinnumálastofnun standa í sumar fyrir átaksverkefni til að fjölga störfum á vegum stofnana ríkisins og sveitarfélaga, fyrir námsmenn og atvinnuleitendur.
Akraneskaupstaður er eitt þeirra sveitarfélaga sem tekur þátt í verkefninu og mun bjóða atvinnuleitendum og námsmönnum með lögheimili á Akranesi að sækja um sumarstörf.
Nú er hægt að sækja um þessi störf með rafrænum hætti hér á vef Akraneskaupstaðar með því að velja hnappinn „sumarstörf“ hér til hægri á forsíðunni.
Í boði eru fjölbreytt störf við margskonar verkefni og er umsóknarfrestur um störfin til og með 20. maí nk. Atvinnuleitendur og námsmenn eru hvattir til að kynna sér verkefnin og sækja um en einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð í þjónustuveri Akraneskaupstaðar á 1. hæð að Stillholti 16–18 eða senda umsóknir á netfangið akranes@akranes.is.