Íbúum á Akranesi hefur á þessu ári fjölgað um 86, eða 1,6% frá því á sama tíma í fyrra og eru, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands, 5517 talsins þann 1. desember sl. Fjöldi íbúa á Akranesi hefur aldrei verið meiri.
Íbúum á Vesturlandi í heild fjölgar um 1,3% þannig að hlutfallslega er meiri fjölgun á Akranesi.
Af þessum 5517 íbúum eru karlar í meirihluta, eða 2832 en konur eru 2685.