Nýverið var undirritaður samningur um innheimtu fasteignagjalda við Landsbankann á Akranesi. Samningurinn kveður á um að útibú Landsbankans á Akranesi tekur að sér að annast innheimtu allra álagðra fasteignagjalda fyrir Akraneskaupstað á árunum 2002 - 2005. Samningur þessi er endurnýjun á eldri samningi við Landsbankann sem annast hefur þessa innheimtu með miklum ágætum undanfarin ár.