Fréttir
Sigurbjörg Þrastardóttir bæjarlistamaður 2013
	<description>Sigurbjörg Þrastardóttir rithöfundur var tilnefnd bæjarlistamaður Akraneskaupstaðar við hátíðlega athöfn sem fór fram í tengslum við 17. júní hátíðarhöld á Akranesi. 
Sigurbjörg er fædd á Akranesi árið 1973 og ólst þar upp. Hún lauk BA prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 1997 og námsbraut í hagnýtri fjölmiðlun árið 1998. Hún var blaðamaður á Morgunblaðinu árin 1998 til 2006 og pistlahöfundur í Lesbók árin 2002 – 2006. Sigurbjörg var í stjórn rithöfundasambands Íslands frá 2003 til 2011 og er í stjón PEN klúbbsins á Íslandi. 
Sigurbjörg Þrastardóttir er mjög afkastamikill rithöfundur en hún hefur gefið út níu ljóðabækur og tvær skáldsögur frá því að fyrsta ljóðabókin hennar, Blálogaland kom út árið 1999. Ljóð Sigurbjargar hafa verið þýdd á ein tólf tungumál í tengslum við bókmenntaþing, ljóðahátíðir og útgáfu safnrita víðsvegar í Evrópu. Af annars konar verkefnum má nefna gjörninga og textagerð fyrir íslensk tónskáld, þýðingar og greinar. Meðal verðlauna og viðurkenninga sem Sigurbjörg hefur fengið eru bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir skáldsöguna Sólar sögu, sem kom út árið 2002. Ljóðabókin Hnattflug var valin besta ljóðabók ársins af starfsfólki bókaverslana árið 2000, ljóðsagan Blysfarir hlaut Fjöruverðlaunin 2008 og var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandráðs árið 2009. Sigurbjörg var skáld Borgarbókasafns í janúar og febrúar árið 2003, skáld Skírnis haustið 2001 og staðarskáld í Villa Concordia í Bamberg, Þýskalandi, veturinn 2011-2012. 
Sigurbjörg er með sterk tengsl við Akranes og má finna þess stað í ljóðum hennar. Hún er með lögheimili á Akranesi þó hún dvelji langdvölum í Reykjavík og erlendis og keppti fyrir Akranes í útsvari síðastliðinn vetur.</description>
Sláttur opinna svæða
	<description>Gengið hefur verið frá verksamningi við Gísla S. Jónsson ehf. um slátt opinna svæða hjá Akraneskaupstað í sumar.  Verktakinn hefur störf í dag en mikill áhersla er lögð á að bæta ásýnd svæðanna fyrir þjóðahátíðardaginn þó skammur tími sé til stefnu.Rifta varð samningi við fyrri verktaka með lögformlegri gildistöku 13. júní sl. sem skýrir þann drátt sem orðið hefur á framkvæmdinni og harmar Akraneskaupstaður þá stöðu.</description>
Umhverfisviðurkenning Akraness 2013
	<description>Skipulags- og umhverfisnefnd Akraneskaupstaðar óskar eftir tilnefningu fyrir umhverfisviðurkenningu 2013 frá íbúum Akraness í eftirtöldum fimm flokkum:
i. Fallegasta götumyndinii. Fallegasta einkalóðiniii. Fallegasta fjölbýlishúsalóðiniv. Snyrtilegasta fyrirtækja- eða stofnanalóðinv. Einstaklingur eða félagasamtök sem hafa lagt sitt af mörkum við að fegra umhverfið
 Tilnefningar frá íbúum skulu berast til Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18 eða með tölvupósti á akranes@akranes.is</description>
Starfsviðurkenningar Akraneskaupstaðar
	<description>Á fjölmennum starfsmannafundi sem haldinn var í Tónbergi þann 3. júní sl. veitti Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri nokkrum starfsmönnum viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf í þágu Akraneskaupstaðar. Ingunn Ríkharðsdóttir leikskólastjóri í Garðaseli tók á móti viðurkenningu fyrir starfsumhverfi en Garðasel var kosin fyrirmyndarstofnun ársins af Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar í flokknum stofnanir með undir 49 starfsmenn. Ennfremur fékk Vallarsel viðurkenningu en leikskólinn var í 2. sæti í sama flokki og tók Brynhildur Björg Jónsdóttir á móti viðurkenningunni. Ruth Rauterberg fékk viðurkenningu fyrir starf með fötluðum börnum og unglingum en hún leiðir verkefnið Gaman Saman í Þorpinu. Ásta Egilsdóttir kennari í Grundaskóla og Guðrún Guðbjarnadóttir kennari í Brekkubæjarskóla fengu viðurkenningu fyrir verkefni um byrjendalæsi, Íris Reynisdóttir garðyrkjustjóri fékk viðurkenningu fyrir verkefni um Bláfánann og Heiðrún Hámundadóttir og Samúel Þorsteinsson fengu viðurkenningu fyrir starf með unglingum við uppsetningu á söngleiknum Elskaðu friðinn. Bæjarstjóri kynnti einnig heildarniðurstöður úr könnnun Capacent á þjónustu bæjarfélagsins en Akranes er í einu af efstu sætunum hvað varðar heildaránægju íbúa samanborið við önnur sveitarfélög. Sérstaklega er ánægjan mikil með starf leik-og grunnskóla í bænum.
Sjá fleiri myndir hér</description>
Akranesviti opnaður fyrir almenning
	<description>Í dag, 31. maí undirrituðu Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri fyrir hönd Akraneskaupstaðar og Hilmar Sigvaldason  fyrir hönd áhugaljósmyndaklúbbsins Vitans,  samstarfssamning til þriggja ára. Markmið samstarfsins er að virkja ljósmyndun sem áhugamál hjá almenningi á Akranesi og  skapa um leið öflugan vettvang til menningarviðburða á þessu sviði. 
Akraneskaupstaður útvegar ljósmyndaklúbbnum húsnæði og aðstoðar Vitann við sýningar, t.d. í tengslum við Vökudagana. Vitinn mun annast fræðslu um ljósmyndun fyrir ýmsa hópa, m.a. grunnskólabörn og  eldri borgara. Ennfremur mun Vitinn taka að sér að heimsækja fyrirtæki á Akranesi og taka myndir af fólki við dagleg störf auk þess að mynda húsin í bænum  í samstarfi við Ljósmyndasafn Akraness.  
Einnig var gerður sérstakur viðauki við samninginn til eins árs en í honum felst að áhugaljósmyndararfélagið sér um að halda Akranesvita opnum fyrir almenning alla daga í sumar frá kl. 10 til 12.00 og opnar vitinn á morgun, laugardaginn 1. júní. 
Á myndinni sjást Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri og Hilmar Sigvaldson ásamt þeim Magnúsi Frey Ólafssyni, formanni  samtaka ferðaþjónustuaðila á Akranesi,  Gunnar Viðarssyni, Þorvaldi Sveinssyni, Guðmundi  Bjarka Halldórssyni og  Eyjólfi Matthíassyni  frá áhugaljósmyndaklúbbnum Vitanum og Kristjáni Gunnarssyni umsjónarmanni fasteigna Akraneskaupstaðar. 
Sjá hér myndir sem teknar voru við undirritunina</description>
Garðasel fyrirmyndarstofnun ársins
	<description>Leikskólinn Garðasel var valin fyrirmyndarstofnun á vegum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar  ,,Stofnun ársins - Borg og Bær" í flokki minni stofnana. Leikskólinn Vallarsel var í öðru sæti. Í flokki stærri stofnana voru Faxaflóahafnir í fyrsta sæti og Heilbrigðisstofnun Vesturlands í öðru sæti.  Stærsti hópur félagsmanna Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar starfar hjá Reykjavíkurborg en auk þess starfa félagsmenn hjá fyrirtækjum Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstað, Seltjarnarneskaupstað, ríki og fleirum.
Val á Stofnun ársins og Fyrirtæki ársins er samvinnuverkefni SFR stéttarfélags og VR. St.Rv. bætist nú í hópinn en auk þess tekur Starfsmannaskrifstofa fjármálaráðuneytisins þátt í könnuninni fyrir alla starfsmenn. Könnunin er ein stærsta reglulega vinnumarkaðskönnun sem framkvæmd er hér á landi og gefur mikilvægar upplýsingar um stöðu starfsmanna á vinnumarkaði. Landmælingar Íslands urðu í fyrsta sæti í flokki meðalstórra ríkisstofnana. 
Leikskólinn Garðasel hlaut einnig titilinn fyrirmyndarstofnun ársins 2012.</description>
Fjölbreyttir viðburðir í sumar
	<description>Dagleg leiðsögn um Akranesvita, tónleikaröð, ljósmyndasýning, frisbígolf, þríþraut með sjósundi, Langasandshlaup, hjólaferðir, vikulegar göngur á Akrafjall, leiksýning um landnámið er á meðal þeirra verkefna sem Akraneskaupstaður styrkir til að glæða bæinn lífi í sumar. 
Í vor var auglýst eftir umsóknum um styrki til afþreyingar og viðburða á Akranesi í sumar. Úthlutað verður 2.1 milljónum króna en hámarks styrkupphæð er 300 þúsund fyrir hvert verkefni. Ákveðið var að leggja áherslu á að verkefnin myndu laða ferðamenn til Akraness, bæði innlenda og erlenda auk þess sem Akurnesingar og nærsveitamenn myndu að sjálfsögðu njóta góðs af. Umsóknir voru 22 talsins, samtals að upphæð 4.130 þúsund en þar af voru sex umsóknir sem nefndu ekki umsóknarupphæð. Ákveðið var að veita tólf verkefnum styrk, samtals að upphæð 2.1 milljón króna. Þessi verkefni munu vonandi veita skemmtilegan og litríkan blæ á bæjarbraginn</description>
Námsstyrkur Akraneskaupstaðar
	<description>Við útskrift Fjölbrautaskóla Vesturlands þann 18. maí síðastliðinn afhenti Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri námsstyrk Akraneskaupstaðar. Hann hlaut Guðrún Valdís Jónsdóttir sem lauk stúdentsprófi af náttúrufræðibraut í desember 2012, eftir sjö anna nám. 
Guðrún Valdís fékk styrkinn vegna námsárangurs en hún var með 9,47 í lokaeinkunn á stúdentsprófi. 
Guðrún Valdís hyggst stunda nám í sameindalíffræði og hefur sótt um skólavist í háskólum í Bandaríkjunum og á Íslandi. 
Námsstyrkur Akraneskaupstaðar hefur verið veittur frá árinu 1991 og er í dag 650 þúsund krónur. Styrkurinn er veittur til nemanda sem hefur sýnt afburða námsárangur eða ástundun náms. Hann er auglýstur að vori og voru níu umsóknir um styrkinn í ár. 
Á myndinn eru frá vinsti Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri, Guðrún Valdís Jónsdóttir og Sveinn Kristinsson forseti bæjarstjórnar.</description>
Fjárhagslegur styrkur góður þrátt fyrir rekstrartap
	<description>Ársreikningur Akraneskaupstaðar var tekinn til fyrri umræðu í bæjarstjórn, þriðjudaginn 14. maí 2013, og samþykkti bæjarstjórn að vísa ársreikningnum til síðari umræðu þann 28. maí 2013.
Ársreikningurinn sýnir  þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess þ.e. A og B hluta, sbr. 60.gr sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.
Fjárhagslegur styrkur Akraneskaupstaðar er góður hvort sem litið er til eiginfjárstöðu eða hefðbundinna skuldaþekjuhlutfalla. Skuldahlutfall samstæðunnar er um 109% reiknað samkvæmt fjármálareglum sveitarfélaga, en þær kveða á um hámarkshlutfall sé innan 150% marka.
Tveir af þremur stærstu málaflokkunum undir áætlun.Til fræðslu- og uppeldismála fóru 1.705 milljónir króna nettó eða um 48,2% af skatttekjum og voru þau um 14,2 milljónum undir áætlun eða um 1% . Til æskulýðs- og íþróttamála fóru 315 milljónir króna nettó eða um 8,9% af skatttekjum og voru þau um 12,6 milljónum króna undir áætlun eða um 4%. 
Helstu  niðurstöður:Rekstrarniðurstaða ársreiknings fyrir alla starfsemi Akraneskaupstaðar, A og B hluta  er neikvæð um 258 mkr. og er breyting á forsendum útreiknings á lífeyrisskuldbindingum ein af aðalástæðum þess. Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 160 mkr. Til A hluta teljast: 
Aðalsjóður, 
Eignasjóður, 
Fasteignafélagið slf, 
Gáma 
Byggðasafnið að Görðum. 
Helstu stærðir sem hafa áhrif á neikvæða rekstrarafkomu A hluta og gera má ráð fyrir að séu einskiptis kostnaður eru eins og fyrr segir lífeyrisskuldbindingar, ennfremur  tjónabætur sem féllu á kaupstaðinn vegna Skagavers og gjaldfærsla á starfslokasamningum. 
Rekstrarniðurstaða B hluta var neikvæð um 98 m.kr. Til B hluta fyrirtækja teljast:
Höfði, hjúkrunar-og dvalarheimili, 
Háhiti ehf. 
Fasteignafélagið ehf. 
Helstu stærðir sem hafa áhrif á neikvæða rekstrarafkomu Höfða eru lífeyrisskuldbindingar og eftirlaun,  tímabundin fækkun hjúkrunar- og dvalarrýma  og verðbætur langtímalána, samtals 85 m.kr.
Fjárhagslegur styrkur Höfða er þrátt fyrir þetta góður, þar sem Höfði er með öflugan varasjóð.
Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í árslok 11.650 mkr. Heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 6.649 mkr og eigið fé nam 5.023 mkr en þar af nam hlutdeild meðeigenda 22 mkr.
Veltufé frá rekstri er um 427,9 mkr og hækkar um 21,3 mkr frá árinu 2011. Handbært fé í árslok er um 572,8 mkr og hafði hækkað um 54,7 mkr á árinu.
Ársreikningur Akraneskaupstaðar árið 2012 er birtur á heimasíðu kaupstaðarins undir slóðinni: http://akranes.is/stjornsysla/fjarmal-og-gjold/arsreikningur/, þar er hægt að nálgast frekari upplýsingar s.s. lykiltölur um rekstur, skuldsetningu, greiðsluhæfi og fleira.</description>
Margt í boði á Akranesi á laugardaginn 11 maí.
	<description>Laugardaginn 11. maí verður margt um að vera á Akranesi. Hægt verður að hlusta á þýða tóna, skoða myndverk, skella sér í golf og fræðast um strandmenningu. Þar að auki er alltaf gaman að skella sér í sund, fara á Langasand eða í Garðalund, hina skjólgóðu skógrækt.
Golfmót hefst kl. 9.00, tónleikar í Akraneskirkju á sama tíma og frá kl. 10.00 er opin dagskrá í Vitanum á Breiðinni. 
Vitadagurinn  í Akranesvita og Safnasvæðinu að GörðumVitadagurinn verður haldinn hátíðlegur með tónleikum,upplestri, ljósmynda- og myndlistasýningu í Akranesvita. Um hádegisbil færist samkoman upp að Safnasvæði en þar verður málþing um strandmenningu, tengsl Akranessvæðisins við landnám Grænlands og Nýfundnalands, Kútter Sigurfara – sögu hans og framtíð og vita Akraness sem standa keikir á Breiðinni. Frítt inn.Heimasíða: www.museum.is
Tónleikar Sveins Arnars og Kirkjukórs AkraneskirkjuSveinn Arnar Sæmundsson, bæjarlistamaður Akraness 2012 þakkar fyrir sig ásamt kór Akraneskirkju og býður hann til tónleika á laugardaginn í Akraneskirkju og Vinaminni.Haldnir verða þrennir ólikir tónleikar þar sem hlýða má á sálmaforleiki Bachs, þjóðlög og dægurlög munu njóta sín og Miklabæjar-Sólveig og Djákninn á Myrká ráða ríkjum.Kaffi og pönnukökur. Frítt inn en fólk getur látið frjáls framlög af hendi rakna.Heimasíða: www.akraneskirkja.is
Stóra Skemmumótið, opið golfmót á Garðavelli í boði Verkalýðsfélags Akraness18 holu punktakeppni með forgjöf verður haldið laugardaginn 11. maí. Ræst verður út frá kl. 9:00. Keppt verður í tveimur flokkum: 0-9 og 9.1-24/28. Skráning á golf.is – Mótsgjald kr 3.500.
Þá má nefna að fyrsti heimaleikur ÍA í Pepsideild karla verður mánudaginn 13. maí. á Akranesvelli.</description>
Sumarvinna 2013 - 17 ára unglingar f. 1996
	<description>Akraneskaupstaður og Vinnuskóli Akraness bjóða unglingum f.1996 með lögheimili á Akranesi vinnu við Vinnuskólann.
Vinnan hefst í lok maí og unnið verður 35 klst. á viku. Stefnt er að vinnu í 4-8 vikur, en það ræðst af fjölda umsækjenda hversu langur sá tími verður.  Haldinn verður fundur með umsækjendum áður en vinnan hefst og farið yfir stöðuna.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á skrifstofu Vinnuskólans að Laugarbraut 6 b (gamla slökkvistöðin) eða á bæjarskrifstofunni Stillholti 16-18, 1. hæð og þar skal umsóknum skilað í síðasta lagi miðvikudaginn 15. maí nk.
Einnig er hægt að sækja um hér á vef Akraneskaupstaðar - smellið hér til að sækja umsóknareyðublað
Athugið að aðeins þeir sem skila inn umsókn fyrir tiltekinn tíma verður veitt vinna.
Allar nánari upplýsingar veitir Einar Skúlason, rekstrarstjóri Vinnuskólans
Sími:  863-1113 og 433 1056 - netfang: einar.skulason@akranes.is</description>
Hreinsun og fegrun bæjarins í tilefni af Degi umhverfis
	<description>Dagur umhverfis er 25. apríl ár hvert en þar sem hann bar upp á frídag þetta árið varð föstudagurinn 26. apríl fyrir valinu til hreinsunarátaks. Nemendur 6. bekkjar í Brekkubæjarskóla og Grundaskóla tíndu rusl á Langasandi en þátttaka þeirra var liður í fræðsluverkefnum Bláfánans sem Akraneskaupstaður sótti um viðurkenningu fyrir í febrúar á þessu ári.Starfsfólk bæjarskrifstofu og Landmælinga  með Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra í fararbroddi fóru í tæpra 2 klst. hreinsunarferð meðfram Stillholti og Kirkjubraut og niður á Akratorg. Starfsfólk Fjöliðjunnar við Dalbraut tók einnig þátt í hreinsuninni. Samanlagt úr þessari hreinsun safnaðist 200 kg af rusli.</description>
Nýr upplýsingafulltrúi á Upplýsingamiðstöð ferðamála á Akranesi
	<description>Gengið hefur verið frá ráðningu Ingibjargar Gestsdóttur í starf upplýsingafulltrúa á Upplýsingamiðstöð ferðamála á Akranesi. Starfið var auglýst með umsóknarfresti til 10. apríl sl.  Alls bárust 14 umsóknir um starfið en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.
Ingibjörg er 56 ára gömul. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands árið 2000 og lauk BA prófi í þjóðfræði við Háskóla Íslands árið 2005.  Ingibjörg hefur áralanga reynslu af kynningarmálum og leiðsögn við bæði innlenda og erlenda ferðamenn. Þá var hún m.a. forstöðumaður Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna að Reykjum til þriggja ára. Ingibjörg starfaði við Byggðasafn Akraness í nokkur ár og sá m.a. um Upplýsingamiðstöð ferðamanna þegar hún var staðsett á Safnasvæðinu í Görðum.
Ingibjörg hefur þegar tekið til starfa í Upplýsingamiðstöðinni sem er til húsa við Akratorg, á 1. hæð í Landsbankahúsinu, Suðurgötu 57.  Upplýsingamiðstöðin verður opin daglega frá kl. 10.00-17.00 og um helgar frá kl. 10.00-14.00.  
Símanúmer Upplýsingamiðstöðvar er 433 1065 og netfang info@akranes.is</description>
Breyttur útivistartími barna og unglinga
	<description>Samkvæmt barnaverndarlögum nr. 80/2002, 92. gr. um útivistartíma barna, segir að börn, 12 ára og yngri, megi ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20.00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn, sem eru á aldrinum 13 til 16 ára, skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22.00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. 
Á tímabilinu 1. maí til 1. september lengist útivistartími barna um tvær klukkustundir.
Aldursmörk þessa ákvæðis miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag.--></description>
1. maí á Akranesi
	<description>Verkalýðsfélag Akraness, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, VR, FIT félag iðn- og tæknigreina, Kennarasamband Íslands og Sjúkraliðafélag Íslands standa fyrir dagskrá á hátíðar- og baráttudegi verkafólks 1. maí.
Safnast verður saman við Kirkjubraut 40 kl. 14:00 og genginn verður hringur á neðri-Skaga. Að göngu lokinni verður hátíðardagskrá í sal Verkalýðsfélags Akraness á 3. hæð Kirkjubrautar 40. 
Ræðumaður dagsins er Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri.  
Sjá nánar á vef VLFA</description>
Akrafjall klifið til styrktar góðu málefni
	<description>Síðastliðinn laugardag gekk hópur af Skagamönnum undir forystu Þorsteins Jakobssonar og félagsskaparins Fjallagarpar og gyðjur á Akrafjall. Gangan var til styrktar krabbameinsveikum börnum. Þorsteinn hefur hug á því að ganga á öll helstu bæjarfjöll á landinum í vor og sumar til styrktar málefninu. Með Þorsteini í för var bæjarstjóri Akraness, Regína Ásvaldsdóttir.  Í myndinni sem fylgir fréttinni er viðtal við Þorstein og Regínu.</description>
Kjörfundur á Akranesi vegna alþingiskosninga 27. apríl 2013
	<description>Kjörfundur vegna alþingiskosninga 27. apríl 2013 fer fram í Brekkubæjarskóla og hefst kjörfundur kl. 09:00 og lýkur í síðasta lagi kl. 22:00.
Brekkubæjarskóli (nýbygging, gengið inn frá Vesturgötu):
I. kjördeild 
 Akurgerði til og með Grundartún
II. kjördeild 
 Hagaflöt til og með Reynigrund
III. kjördeild 
 Sandabraut til og með Þjóðvegur
Kjósendur eru hvattir til að kjósa snemma á kjördag. Athugið að krafist er persónuskilríkja.
Sími yfirkjörstjórnar á kjördag er 433 1315
Netfang: kosning@akranes.is
Akranesi, 22. apríl 2013YFIRKJÖRSTJÓRN AKRANESSEinar Jón ÓlafssonBjörn KjartanssonHugrún O. Guðjónsdóttir
Bent skal á að  frekari upplýsingar varðandi kosningarnar og um þjónustu á kjördag er að finna á vef innanríkisráðuneytisins, smellið hér</description>
Fréttatilkynning frá Akraneskaupstað
	<description>Á fundi bæjarstjórnar í dag var samþykkt að ráða Steinar Dag Adolfsson í stöðu framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs Akraneskaupstaðar og Sigurð Pál Harðarson í stöðu framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs. Störfin voru auglýst laus til umsóknar þann 2. mars síðastliðinn með umsóknarfresti til og með 24. mars. 25 umsækjendur sóttu um starf framkvæmdastjóra stjórnsýslu -og fjármálasviðs og 22 um stöðu framkvæmdastjóra umhverfis -og framkvæmdasviðs. 
Steinar Dagur er 43 ára lögfræðingur og framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund árið 1990, íþróttakennaraprófi árið 1994 og útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2001. Steinar Dagur hefur starfað sem framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna í 5 ár, tímabilin 2007 til 2009 og aftur frá árinu 2010. Árið 2009 starfaði hann sem verkefnisstjóri vinnumarkaðsúrræða  hjá NAV Kongvinger í Noregi,  sem  lögfræðingur yfirstjórnar hjá embætti ríkislögreglustjóra árin  2003 til 2007 og sem lögfræðingur hjá sveitarfélaginu Kongsvinger árin 2002 til 2003.  Steinar Dagur var landsliðsmaður í knattspyrnu og starfaði sem  atvinnumaður í fótboltanum árin 1999-2002. Steinar Dagur er kvæntur Hafrúnu Jóhannesdóttur leikskólakennara og eiga þau þrjú börn.
Sigurður Páll Harðarson er 51 árs verkfræðingur og starfar sem sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Hafnarfjarðar. Sigurður Páll lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi árið 1981, BS í byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1989, M.Sc í byggingaverkfræði frá Tækniháskólanum í Danmörku árið 1993 og MBA frá Háskóla Íslands árið 2004. Sigurður  Páll hefur gegnt starfi sviðsstjóra hjá Hafnarfjarðarbæ frá árinu 2009. Hann starfaði hjá KPMG árin 2007 til 2009 og var bæjarverkfræðingur í Borgarbyggð  árin  1993 til 2007. Sigurður Páll er kvæntur Áslaugu Árnadóttur snyrtifræðingi og eiga þau þrjú börn. 
Auk ofantaldra starfa var auglýst eftir atvinnu-og ferðamálafulltrúa Akraneskaupstaðar og stendur það ráðningaferli enn yfir.</description>
Kjörskrá vegna alþingiskosninga 27. apríl 2013
	<description>Kosningar til Alþingis fara fram 27. apríl nk. Kjörskrá á Akranesi hefur nú verið lögð fram og samþykkt. Alls hafa 2368 karlar og 2304 konur, eða alls 4672 einstaklingar rétt samkvæmt henni til að kjósa hér á Akranesi. Á kjörskrá eru þeir sem tilkynnt hafa lögheimilisflutning fyrir 23. mars sl. 
Kjörskráin liggur nú frammi í þjónustuveri Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 1. hæð, og er þar opin almenningi til sýnis á almennum skrifstofutíma fram til  kjördags. Þeim sem vilja koma athugasemdum á framfæri vegna kjörskrár er bent á að snúa sér til þjónustu- og upplýsingastjóra. Athygli er vakin á því að sveitarstjórn getur allt til kjördags gert leiðréttingar á kjörskrá ef við á.</description>
Nýr rekstraraðili tjaldsvæðisins í Kalmansvík
	<description>Síðari hluta marsmánaðar var auglýst eftir tilboðum í rekstur tjaldsvæðisins í Kalmansvík og voru tilboð opnuð 2. apríl s.l.Framkvæmdaráð samþykkti að ganga til  samninga við Kötlu Maríu Ketilsdóttur, Viðjuskógum 13 á Akranesi og föstudaginn 12. apríl s.l. undirrituðu Katla María og Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri verksamning sem gildir til 30. apríl 2016. Samkvæmt honum tekur Katla María við rekstri tjaldsvæðisins frá og með 15. apríl 2013. Einnig gerir samningurinn ráð fyrir að Katla María annast umsjón með almenningsalernum við Langasand og í Garðalundi.</description>