Fréttir
Námsstyrkur Akraneskaupstaðar
	<description>Við útskrift Fjölbrautaskóla Vesturlands þann 18. maí síðastliðinn afhenti Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri námsstyrk Akraneskaupstaðar. Hann hlaut Guðrún Valdís Jónsdóttir sem lauk stúdentsprófi af náttúrufræðibraut í desember 2012, eftir sjö anna nám. 
Guðrún Valdís fékk styrkinn vegna námsárangurs en hún var með 9,47 í lokaeinkunn á stúdentsprófi. 
Guðrún Valdís hyggst stunda nám í sameindalíffræði og hefur sótt um skólavist í háskólum í Bandaríkjunum og á Íslandi. 
Námsstyrkur Akraneskaupstaðar hefur verið veittur frá árinu 1991 og er í dag 650 þúsund krónur. Styrkurinn er veittur til nemanda sem hefur sýnt afburða námsárangur eða ástundun náms. Hann er auglýstur að vori og voru níu umsóknir um styrkinn í ár. 
Á myndinn eru frá vinsti Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri, Guðrún Valdís Jónsdóttir og Sveinn Kristinsson forseti bæjarstjórnar.</description>
Fjárhagslegur styrkur góður þrátt fyrir rekstrartap
	<description>Ársreikningur Akraneskaupstaðar var tekinn til fyrri umræðu í bæjarstjórn, þriðjudaginn 14. maí 2013, og samþykkti bæjarstjórn að vísa ársreikningnum til síðari umræðu þann 28. maí 2013.
Ársreikningurinn sýnir  þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess þ.e. A og B hluta, sbr. 60.gr sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.
Fjárhagslegur styrkur Akraneskaupstaðar er góður hvort sem litið er til eiginfjárstöðu eða hefðbundinna skuldaþekjuhlutfalla. Skuldahlutfall samstæðunnar er um 109% reiknað samkvæmt fjármálareglum sveitarfélaga, en þær kveða á um hámarkshlutfall sé innan 150% marka.
Tveir af þremur stærstu málaflokkunum undir áætlun.Til fræðslu- og uppeldismála fóru 1.705 milljónir króna nettó eða um 48,2% af skatttekjum og voru þau um 14,2 milljónum undir áætlun eða um 1% . Til æskulýðs- og íþróttamála fóru 315 milljónir króna nettó eða um 8,9% af skatttekjum og voru þau um 12,6 milljónum króna undir áætlun eða um 4%. 
Helstu  niðurstöður:Rekstrarniðurstaða ársreiknings fyrir alla starfsemi Akraneskaupstaðar, A og B hluta  er neikvæð um 258 mkr. og er breyting á forsendum útreiknings á lífeyrisskuldbindingum ein af aðalástæðum þess. Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 160 mkr. Til A hluta teljast: 
Aðalsjóður, 
Eignasjóður, 
Fasteignafélagið slf, 
Gáma 
Byggðasafnið að Görðum. 
Helstu stærðir sem hafa áhrif á neikvæða rekstrarafkomu A hluta og gera má ráð fyrir að séu einskiptis kostnaður eru eins og fyrr segir lífeyrisskuldbindingar, ennfremur  tjónabætur sem féllu á kaupstaðinn vegna Skagavers og gjaldfærsla á starfslokasamningum. 
Rekstrarniðurstaða B hluta var neikvæð um 98 m.kr. Til B hluta fyrirtækja teljast:
Höfði, hjúkrunar-og dvalarheimili, 
Háhiti ehf. 
Fasteignafélagið ehf. 
Helstu stærðir sem hafa áhrif á neikvæða rekstrarafkomu Höfða eru lífeyrisskuldbindingar og eftirlaun,  tímabundin fækkun hjúkrunar- og dvalarrýma  og verðbætur langtímalána, samtals 85 m.kr.
Fjárhagslegur styrkur Höfða er þrátt fyrir þetta góður, þar sem Höfði er með öflugan varasjóð.
Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í árslok 11.650 mkr. Heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 6.649 mkr og eigið fé nam 5.023 mkr en þar af nam hlutdeild meðeigenda 22 mkr.
Veltufé frá rekstri er um 427,9 mkr og hækkar um 21,3 mkr frá árinu 2011. Handbært fé í árslok er um 572,8 mkr og hafði hækkað um 54,7 mkr á árinu.
Ársreikningur Akraneskaupstaðar árið 2012 er birtur á heimasíðu kaupstaðarins undir slóðinni: http://akranes.is/stjornsysla/fjarmal-og-gjold/arsreikningur/, þar er hægt að nálgast frekari upplýsingar s.s. lykiltölur um rekstur, skuldsetningu, greiðsluhæfi og fleira.</description>
Tilnefning til bæjarlistamanns á Akranesvefnum
	<description>Árlega útnefnir Akraneskaupstaður bæjarlistamann til eins árs í senn og veitir auk þess sérstök menningarverðlaun til þeirra fyrirtækja, félagasamtaka eða einstaklinga sem hafa stuðlað að eflingu menningar- og listalífs á Akranesi. Sveinn Arnar Sæmundsson orgelleikari og kórstjóri er núverandi bæjarlistamaður á Akranesi. 
Nú hefur menningarmálanefnd Akraness ákveðið að gefa almenningi kost á að taka þátt í að tilnefna næsta bæjarlistamann hér á vef Akraneskaupstaðar. Hér er hægt að fara inn á tilnefningaformið sem fylla þarf út og senda inn. Menningarmálanefnd Akraness mun fara yfir allar tilnefningar og verður val á bæjarlistamanni  kynnt við hátíðlega athöfn á þjóðhátíðardeginum 17. júní. Fólk er hvatt til að kynna sér vel þær reglur sem í gildi eru um bæjarlistamann en tilnefningarfrestur rennur út þann 2. júní nk.</description>
Margt í boði á Akranesi á laugardaginn 11 maí.
	<description>Laugardaginn 11. maí verður margt um að vera á Akranesi. Hægt verður að hlusta á þýða tóna, skoða myndverk, skella sér í golf og fræðast um strandmenningu. Þar að auki er alltaf gaman að skella sér í sund, fara á Langasand eða í Garðalund, hina skjólgóðu skógrækt.
Golfmót hefst kl. 9.00, tónleikar í Akraneskirkju á sama tíma og frá kl. 10.00 er opin dagskrá í Vitanum á Breiðinni. 
Vitadagurinn  í Akranesvita og Safnasvæðinu að GörðumVitadagurinn verður haldinn hátíðlegur með tónleikum,upplestri, ljósmynda- og myndlistasýningu í Akranesvita. Um hádegisbil færist samkoman upp að Safnasvæði en þar verður málþing um strandmenningu, tengsl Akranessvæðisins við landnám Grænlands og Nýfundnalands, Kútter Sigurfara – sögu hans og framtíð og vita Akraness sem standa keikir á Breiðinni. Frítt inn.Heimasíða: www.museum.is
Tónleikar Sveins Arnars og Kirkjukórs AkraneskirkjuSveinn Arnar Sæmundsson, bæjarlistamaður Akraness 2012 þakkar fyrir sig ásamt kór Akraneskirkju og býður hann til tónleika á laugardaginn í Akraneskirkju og Vinaminni.Haldnir verða þrennir ólikir tónleikar þar sem hlýða má á sálmaforleiki Bachs, þjóðlög og dægurlög munu njóta sín og Miklabæjar-Sólveig og Djákninn á Myrká ráða ríkjum.Kaffi og pönnukökur. Frítt inn en fólk getur látið frjáls framlög af hendi rakna.Heimasíða: www.akraneskirkja.is
Stóra Skemmumótið, opið golfmót á Garðavelli í boði Verkalýðsfélags Akraness18 holu punktakeppni með forgjöf verður haldið laugardaginn 11. maí. Ræst verður út frá kl. 9:00. Keppt verður í tveimur flokkum: 0-9 og 9.1-24/28. Skráning á golf.is – Mótsgjald kr 3.500.
Þá má nefna að fyrsti heimaleikur ÍA í Pepsideild karla verður mánudaginn 13. maí. á Akranesvelli.</description>
Sumarvinna 2013 - 17 ára unglingar f. 1996
	<description>Akraneskaupstaður og Vinnuskóli Akraness bjóða unglingum f.1996 með lögheimili á Akranesi vinnu við Vinnuskólann.
Vinnan hefst í lok maí og unnið verður 35 klst. á viku. Stefnt er að vinnu í 4-8 vikur, en það ræðst af fjölda umsækjenda hversu langur sá tími verður.  Haldinn verður fundur með umsækjendum áður en vinnan hefst og farið yfir stöðuna.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á skrifstofu Vinnuskólans að Laugarbraut 6 b (gamla slökkvistöðin) eða á bæjarskrifstofunni Stillholti 16-18, 1. hæð og þar skal umsóknum skilað í síðasta lagi miðvikudaginn 15. maí nk.
Einnig er hægt að sækja um hér á vef Akraneskaupstaðar - smellið hér til að sækja umsóknareyðublað
Athugið að aðeins þeir sem skila inn umsókn fyrir tiltekinn tíma verður veitt vinna.
Allar nánari upplýsingar veitir Einar Skúlason, rekstrarstjóri Vinnuskólans
Sími:  863-1113 og 433 1056 - netfang: einar.skulason@akranes.is</description>
Hreinsun og fegrun bæjarins í tilefni af Degi umhverfis
	<description>Dagur umhverfis er 25. apríl ár hvert en þar sem hann bar upp á frídag þetta árið varð föstudagurinn 26. apríl fyrir valinu til hreinsunarátaks. Nemendur 6. bekkjar í Brekkubæjarskóla og Grundaskóla tíndu rusl á Langasandi en þátttaka þeirra var liður í fræðsluverkefnum Bláfánans sem Akraneskaupstaður sótti um viðurkenningu fyrir í febrúar á þessu ári.Starfsfólk bæjarskrifstofu og Landmælinga  með Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra í fararbroddi fóru í tæpra 2 klst. hreinsunarferð meðfram Stillholti og Kirkjubraut og niður á Akratorg. Starfsfólk Fjöliðjunnar við Dalbraut tók einnig þátt í hreinsuninni. Samanlagt úr þessari hreinsun safnaðist 200 kg af rusli.</description>
Nýr upplýsingafulltrúi á Upplýsingamiðstöð ferðamála á Akranesi
	<description>Gengið hefur verið frá ráðningu Ingibjargar Gestsdóttur í starf upplýsingafulltrúa á Upplýsingamiðstöð ferðamála á Akranesi. Starfið var auglýst með umsóknarfresti til 10. apríl sl.  Alls bárust 14 umsóknir um starfið en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.
Ingibjörg er 56 ára gömul. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands árið 2000 og lauk BA prófi í þjóðfræði við Háskóla Íslands árið 2005.  Ingibjörg hefur áralanga reynslu af kynningarmálum og leiðsögn við bæði innlenda og erlenda ferðamenn. Þá var hún m.a. forstöðumaður Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna að Reykjum til þriggja ára. Ingibjörg starfaði við Byggðasafn Akraness í nokkur ár og sá m.a. um Upplýsingamiðstöð ferðamanna þegar hún var staðsett á Safnasvæðinu í Görðum.
Ingibjörg hefur þegar tekið til starfa í Upplýsingamiðstöðinni sem er til húsa við Akratorg, á 1. hæð í Landsbankahúsinu, Suðurgötu 57.  Upplýsingamiðstöðin verður opin daglega frá kl. 10.00-17.00 og um helgar frá kl. 10.00-14.00.  
Símanúmer Upplýsingamiðstöðvar er 433 1065 og netfang info@akranes.is</description>
Breyttur útivistartími barna og unglinga
	<description>Samkvæmt barnaverndarlögum nr. 80/2002, 92. gr. um útivistartíma barna, segir að börn, 12 ára og yngri, megi ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20.00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn, sem eru á aldrinum 13 til 16 ára, skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22.00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. 
Á tímabilinu 1. maí til 1. september lengist útivistartími barna um tvær klukkustundir.
Aldursmörk þessa ákvæðis miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag.--></description>
1. maí á Akranesi
	<description>Verkalýðsfélag Akraness, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, VR, FIT félag iðn- og tæknigreina, Kennarasamband Íslands og Sjúkraliðafélag Íslands standa fyrir dagskrá á hátíðar- og baráttudegi verkafólks 1. maí.
Safnast verður saman við Kirkjubraut 40 kl. 14:00 og genginn verður hringur á neðri-Skaga. Að göngu lokinni verður hátíðardagskrá í sal Verkalýðsfélags Akraness á 3. hæð Kirkjubrautar 40. 
Ræðumaður dagsins er Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri.  
Sjá nánar á vef VLFA</description>
Akrafjall klifið til styrktar góðu málefni
	<description>Síðastliðinn laugardag gekk hópur af Skagamönnum undir forystu Þorsteins Jakobssonar og félagsskaparins Fjallagarpar og gyðjur á Akrafjall. Gangan var til styrktar krabbameinsveikum börnum. Þorsteinn hefur hug á því að ganga á öll helstu bæjarfjöll á landinum í vor og sumar til styrktar málefninu. Með Þorsteini í för var bæjarstjóri Akraness, Regína Ásvaldsdóttir.  Í myndinni sem fylgir fréttinni er viðtal við Þorstein og Regínu.</description>
Kjörfundur á Akranesi vegna alþingiskosninga 27. apríl 2013
	<description>Kjörfundur vegna alþingiskosninga 27. apríl 2013 fer fram í Brekkubæjarskóla og hefst kjörfundur kl. 09:00 og lýkur í síðasta lagi kl. 22:00.
Brekkubæjarskóli (nýbygging, gengið inn frá Vesturgötu):
I. kjördeild 
 Akurgerði til og með Grundartún
II. kjördeild 
 Hagaflöt til og með Reynigrund
III. kjördeild 
 Sandabraut til og með Þjóðvegur
Kjósendur eru hvattir til að kjósa snemma á kjördag. Athugið að krafist er persónuskilríkja.
Sími yfirkjörstjórnar á kjördag er 433 1315
Netfang: kosning@akranes.is
Akranesi, 22. apríl 2013YFIRKJÖRSTJÓRN AKRANESSEinar Jón ÓlafssonBjörn KjartanssonHugrún O. Guðjónsdóttir
Bent skal á að  frekari upplýsingar varðandi kosningarnar og um þjónustu á kjördag er að finna á vef innanríkisráðuneytisins, smellið hér</description>
Fréttatilkynning frá Akraneskaupstað
	<description>Á fundi bæjarstjórnar í dag var samþykkt að ráða Steinar Dag Adolfsson í stöðu framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs Akraneskaupstaðar og Sigurð Pál Harðarson í stöðu framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs. Störfin voru auglýst laus til umsóknar þann 2. mars síðastliðinn með umsóknarfresti til og með 24. mars. 25 umsækjendur sóttu um starf framkvæmdastjóra stjórnsýslu -og fjármálasviðs og 22 um stöðu framkvæmdastjóra umhverfis -og framkvæmdasviðs. 
Steinar Dagur er 43 ára lögfræðingur og framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund árið 1990, íþróttakennaraprófi árið 1994 og útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2001. Steinar Dagur hefur starfað sem framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna í 5 ár, tímabilin 2007 til 2009 og aftur frá árinu 2010. Árið 2009 starfaði hann sem verkefnisstjóri vinnumarkaðsúrræða  hjá NAV Kongvinger í Noregi,  sem  lögfræðingur yfirstjórnar hjá embætti ríkislögreglustjóra árin  2003 til 2007 og sem lögfræðingur hjá sveitarfélaginu Kongsvinger árin 2002 til 2003.  Steinar Dagur var landsliðsmaður í knattspyrnu og starfaði sem  atvinnumaður í fótboltanum árin 1999-2002. Steinar Dagur er kvæntur Hafrúnu Jóhannesdóttur leikskólakennara og eiga þau þrjú börn.
Sigurður Páll Harðarson er 51 árs verkfræðingur og starfar sem sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Hafnarfjarðar. Sigurður Páll lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi árið 1981, BS í byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1989, M.Sc í byggingaverkfræði frá Tækniháskólanum í Danmörku árið 1993 og MBA frá Háskóla Íslands árið 2004. Sigurður  Páll hefur gegnt starfi sviðsstjóra hjá Hafnarfjarðarbæ frá árinu 2009. Hann starfaði hjá KPMG árin 2007 til 2009 og var bæjarverkfræðingur í Borgarbyggð  árin  1993 til 2007. Sigurður Páll er kvæntur Áslaugu Árnadóttur snyrtifræðingi og eiga þau þrjú börn. 
Auk ofantaldra starfa var auglýst eftir atvinnu-og ferðamálafulltrúa Akraneskaupstaðar og stendur það ráðningaferli enn yfir.</description>
Kjörskrá vegna alþingiskosninga 27. apríl 2013
	<description>Kosningar til Alþingis fara fram 27. apríl nk. Kjörskrá á Akranesi hefur nú verið lögð fram og samþykkt. Alls hafa 2368 karlar og 2304 konur, eða alls 4672 einstaklingar rétt samkvæmt henni til að kjósa hér á Akranesi. Á kjörskrá eru þeir sem tilkynnt hafa lögheimilisflutning fyrir 23. mars sl. 
Kjörskráin liggur nú frammi í þjónustuveri Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 1. hæð, og er þar opin almenningi til sýnis á almennum skrifstofutíma fram til  kjördags. Þeim sem vilja koma athugasemdum á framfæri vegna kjörskrár er bent á að snúa sér til þjónustu- og upplýsingastjóra. Athygli er vakin á því að sveitarstjórn getur allt til kjördags gert leiðréttingar á kjörskrá ef við á.</description>
Nýr rekstraraðili tjaldsvæðisins í Kalmansvík
	<description>Síðari hluta marsmánaðar var auglýst eftir tilboðum í rekstur tjaldsvæðisins í Kalmansvík og voru tilboð opnuð 2. apríl s.l.Framkvæmdaráð samþykkti að ganga til  samninga við Kötlu Maríu Ketilsdóttur, Viðjuskógum 13 á Akranesi og föstudaginn 12. apríl s.l. undirrituðu Katla María og Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri verksamning sem gildir til 30. apríl 2016. Samkvæmt honum tekur Katla María við rekstri tjaldsvæðisins frá og með 15. apríl 2013. Einnig gerir samningurinn ráð fyrir að Katla María annast umsjón með almenningsalernum við Langasand og í Garðalundi.</description>
Stefnumótun og áætlunargerð í málefnum ungmenna á Akranesi
	<description>Í dag var undirritaður samstarfssamningur Akraneskaupstaðar og rannsóknar-miðstöðvarinnar Rannsóknir & greining.  
Markmið samstarfsins er að vinna hagnýtar upplýsingar í hendur forvarnarhópa og bæjaryfirvalda til stefnumótunar og áætlunargerðar í málefnum ungmenna á Akranesi.  Tengiliður fyrir hönd Akraneskaupstaðar er Heiðrún Janusardóttir verkefnisstjóri og fyrir hönd R & G, Jón Sigfússon.
Rannsóknamiðstöðin Rannsóknir & greining hefur sérhæft sig í rannsóknum á högum og líðan ungs fólks í grunn- og framhaldsskólum undanfarin ár og hafa rannsóknirnar vakið athygli langt út fyrir landsteinana.  Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að afla gagna og vinna úr þeim annars vegar vísindagreinar og hins vegar hagnýtar upplýsingar fyrir fólk sem vinnur að málefnum barna og ungmenna.
Á myndinni eru frá vinstri: Lúðvík Gunnarsson, Jón Sigfússon frá R & G, Svala Hreinsdóttir, Heiðrún Janusardóttir, Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri og Helga Gunnarsdóttir.</description>
Upplýsingar um skráningu á kjörskrá
	<description>Kjósendur geta nú kannað hvar þeir eru á kjörskrá í alþingiskosningunum laugardaginn 27. apríl næstkomandi á kosningavef innanríkisráðuneytisins  og á vefnum island.is. Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag. Í mörgum tilvikum birtast einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild.Þjóðskrá Íslands sér um gerð kjörskrárstofna og sveitarstjórnir gera kjörskrár á grundvelli þeirra. Enginn getur neytt kosningarréttar nema nafn hans sé á kjörskrá þegar kosning fer fram. Á kjörskrárstofni eru allir íslenskir ríkisborgarar sem skráðir voru með lögheimili í ákveðnu sveitarfélagi samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 23. mars 2013 og fæddir eru 27. apríl 1995 og fyrr. Enn fremur eru á kjörskrárstofni þeir íslenskir ríkisborgarar, sem lögheimili eiga erlendis en eiga kosningarrétt samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis.</description>
70 umsóknir um þrjár stöður hjá Akraneskaupstað.
	<description>Akraneskaupstaður auglýsti  þrjár stöður lausar til umsóknar með umsóknarfresti til og með 24 mars sl. Um er að ræða stöðu framkvæmdastjóra stjórnsýslu-og fjármálasviðs, framkvæmdastjóra umhverfis-og framkvæmdasviðs og stöðu atvinnu-og ferðamálafulltrúa. Alls bárust 70 umsóknir um störfin. 24 sóttu um stöðu framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, 22 sóttu um stöðu framkvæmdastjóra umhverfis-og framkvæmdasviðs og 22 um stöðu atvinnu-og ferðamálafulltrúa. 
Umsækjendur eru:Framkvæmdastjóri stjórnsýslu-og fjármálasviðs
Brynja Kolbrún Pétursdóttir Leynisbraut 18 AkranesiBrynja Þorbjörnsdóttir  Kalastaðir HvalfjarðarsveitEllert Jón Björnsson   Vosnæsparken Danmörku Eydís Aðalbjörnsdóttir  Vogabraut 1 Akranesi Eyþór Björnsson     Naustabryggju 15 Reykjavík Haraldur Ingólfsson  Bjarkargrund 18 Akranesi Jóhannes Finnur Halldórsson Vesturgötu 141  Akranesi Jón Óskar Þórhallsson  Laufengi 154  ReykjavíkJón Pálsson   Óðinsgötu 30 Reykjavík Kári Gunndórsson  Vesturgötu 158  Akranesi Kjartan Örn Sigurðsson  Muruholti 2  Garðabæ Kristinn Ásgeirsson  Bakkaseli 1 Reykjavík Kristinn Hjálmarsson  Laufási 6    Garðabæ Kristjana Helga Ólafsdóttir Grenigrund 13  Akranesi Kristján Eiríksson  Norðurbrú 4 GarðabæPáll Ólafsson   Breiðuvík 57  Reykjavík Rögnvaldur Guðmundsson  Kirkjustétt 7a  Reykjavík Sigurður Guðmundsson  Svölukletti  Borgarnesi Sigurður Már Gunnarsson  Jörundarholt 102 Akranesi Stefán Jóhann Hreinsson  Álmskógum 15  Akranesi  Steinar Dagur Adolfsson  Víðigrund 6 Akranesi Svandís Edda Halldórsd.  Eskivöllum 21b HafnarfirðiValdís Eyjólfsdóttir  Bakkatúni 6 Akranesi Þórir Sveinsson   Stekkum 13   Patreksfirði 
Framkvæmdastjóri umhverfis-og framkvæmdasviðs
Anna María Þráinsdóttir  Garðabraut 2a  AkranesiÁrmann Halldórsson  Bjarkargötu 8  PatreksfjörðurBirgitta Rán Ásgeirsdóttir Skarðsbraut 11  AkranesiDrífa Gústafsdóttir  Leynisbraut 33  AkranesiEinar Magnús Einarsson  Breiðvangi 6 HafnarfirðiGísli Hermannsson  Fururási 3 HafnarfirðiGuðbjörg Sandra Gunnarsdóttir Danmörku   Guðmundur Elíasson  Dalsseli 40  Reykjavík  Guðný Elíasdóttir  Víðigrund 3  Akranesi   Hermann Ragnarsson  Huldubraut 62  Kópavogi  Hjördís Sigurðardóttir  Holland (Króktún 14  Hvolsv)Hreinn Sigurðsson  Noregur   Ottó Tynes   Laugavegi 98  Reykjavík  Ólafur Þ.Stefánsson  Ásbúð 8   Garðabæ  Ómar Örn Kristófersson  Kúludalsá 4b  Hvalfjarðarsveit   Runólfur Þór Sigurðsson  Leynisbraut 37  Akranesi  Rúnar Ingi Guðbjörnsson  Álfholti 26  Hafnarfirði  Sigurður Páll Harðarson     Bjarkargrund 22  Akranesi  Sigurður Hilmar Ólafsson Þórustíg 16 Reykjanesbæ Sigurjón Jónsson  Winnipeg   Svandís Edda Halldórsdóttir  Eskivöllum 21b Hafnarfirði  Þorbjörn Tjörvi Stefánsson Móvaði 17   Reykjavík    
Atvinnu-og ferðamálafulltrúiAnna Elísabet Jónsdóttir Eyraflöt 7  Akranesi  Ágúst Bjarni Garðarsson  Bjarkavöllum 5g  Hafnarfirði Bergþóra Jónsdóttir  Garðabraut 6 Akranesi Drífa Gústafsdóttir  Leynisbraut 33  Akranesi Erling Elís Erlingsson  Garðhúsum 10 Reykjavík Eva Eiríksdóttir  Laugarnesvegi 90  Reykjavík Guðjón Steindórsson  Bakkahlíð 45  Akureyri Guðný Ruth Þorfinnsdóttir Jörundarholti 21  Akranesi Gunnar Kristinn Þórðarson Langholtsvegi 174  Reykjavík Hannibal G. Hauksson  Bogahlíð 16  Reykjajvík Hekla Gunnarsdóttir  Skógarflöt 11 Akranesi Helga Jenný Stefánsdóttir Nesvegi 100 Seltjarnarnesi Hilmar Sigvaldason  Tindaflöt 1 Akranesi Katrín Erla Sigurðardóttir Árlandi 3  Reykjavík Kristinn Ásgeirsson  Bakkaseli 1 Reykjavík Kristján Guðmundsson  Túngötu 11 Hvanneyri Málfríður Finnbogadóttir Bárugranda 5 Reykjavík Rögnvaldur Guðmundsson  Kirkjustétt 7a  ReykjavíkSigurður Már Gunnarsson  Jörundarholti 102  Akranesi Svandís Edda Halldórsdóttir Eskivöllum 21b  HafnarfirðiTómas Þór Tómasson  Lindasmára 48 KópavogiVigdís Sæunn Ingólfsdóttir Holtsflöt 6  Akranesi  
Verið er að vinna úr umsóknum en reiknað er með að ráðningaferlið taki að minnsta kosti 4-5 vikur.</description>
Samstarfs óskað um hátíðarhöld á 17. júní og Írskum dögum
	<description>Akraneskaupstaður óskar eftir að ganga til samninga við einstaklinga og/eða fyrirtæki um utanumhald og framkvæmd á hátíðarhöldum á þjóðhátíðardeginum 17. júní og Írskum dögum sem haldnir verða 4-7 júlí. Hægt er að sækja um afmarkaða viðburði á viðkomandi hátíðum.Eftirfarandi kröfur eru gerðar til dagskrár:Á 17. júní þarf að vera fánahylling á Akratorgi með hefðbundnum dagskráratriðum. Einnig  skrúðganga, hátíðardagskrá og fleira í samstarfi við félagasamtök, einstaklinga og fyrirtæki.
Á Írskum dögum þarf að vera opnunarhátíð á fimmtudegi, kvöldvaka í miðbænum á föstudagskvöldi og viðburðir í miðbænum á laugardegi. Auk þess fjölskylduhátíð á sunnudegi, lokahátíð Írskra daga. Hátíðina er hægt að framkvæma í samstarfi við félagasamtök, einstaklinga og fyrirtæki.
Í umsókn skal eftirfarandi koma fram:• Viðburður sem sótt er um • Lýsing á einstaka dagskrárliðum • Verk-og tímaáætlun • Kostnaðaráætlun
Nánari upplýsingar veitir Anna Leif Elídóttir, Byggðasafninu á Görðum, í síma 431 5566 og með netfanginu anna.leif.elidottir@akranes.isUmsóknir sendist á bæjarskrifstofur Akraness, á netfangið akranes@akranes.is  merkt viðburðir 2013 fyrir 10. apríl næstkomandi.</description>
Útboð á rekstri tjaldsvæðis o.fl. á Akranesi
	<description>Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í rekstur tjaldsvæðis o.fl.
Óskað er eftir tilboðum í verkið:
Akranes – rekstur tjaldsvæðis o.fl.
Stutt lýsing verkefnis:Óskað er eftir tilboðum í  rekstur tjaldsvæðisins við Kalmansvík á Akranesi. Árlegur opnunartími er frá 1. apríl til 30. sept. en í ár skal nýr rekstraraðili hefja störf 1. maí n.k.Hluti verkefnisins er einnig umsjón með almenningssalernum í Garðalundi og við Langasand. Opnunartími þeirra er nánar skilgreindur í útboðsgögnum.Samningstími er 3 ár.
Boðið verður upp á kynningu á aðstæðum á tjaldsvæðinu miðvikudaginn 20. mars n.k. kl. 10:00.
Útboðsgögn verða afhent án endurgjalds á CD-diski í þjónustuveri Akraneskaupstaðar Stillholti 16-18, 1. hæð frá og með 15. mars 2013 .
Tilboð verða opnuð 2. apríl 2013 kl. 11:00 í fundarherbergi umhverfis- og framkvæmdasviðs á 1. hæð að Stillholti 16-18.Óski bjóðendur eftir gögnum á pappír verða þau seld á kr. 5.000,-.</description>
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar
	<description>Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Tónbergi sl. mánudagskvöld. Lokahátíðin er nokkurs konar uppskeruhátíð nemenda í 7. bekk, en þeir hafa lagt sérstaka rækt við vandaðan upplestur á undanförnum mánuðum.
Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA, ávarpaði samkomuna í upphafi. Tólf nemendur úr 7. bekkjum beggja grunnskólanna voru valin til þátttöku og lásu þau sögubrot og ljóð. Dómnefnd valdi þrjá bestu  lesara kvöldsins, þau Helenu Dögg Einarsdóttur í 1. sæti, Jón Ingva Einarsson í 2. sæti og Önnu Bertu Heimisdóttur í þriðja sæti. Allir nemendurnir skiluðu framlagi sínu með miklum ágætum.
 Það var ánægjulegt að sjá hve margir lögðu leið sína í Tónberg til að njóta dagskrárinnar sem þar var í boði en auk upplestrarins léku nemendur Tónlistarskólans nokkur lög á fiðlu fyrir gesti.</description>