|
Það verður nóg um að vera hjá okkur þessa næst síðustu opnunarviku þessa vetrar. Að vísu er sumarið komið og óskum við ykkur til hamingju með það :)
Í kvöld, mánudag, ætlum við að skella okkur í VARÚLF í síðasta skiptið. Við viljum því hvetja alla sem hafa gaman af þessum leik til að mæta og skemmta sér vel með okkur. Rétt er að benda á að nemendur frá Lilleskole í Danmörku munu gista í Arnardal í kvöld og þið takið bara vel á móti þeim.
Á morgun, þriðjudag, munum við svo skella okkur í ÓVISSUFERÐ HÚSFÉLAGSINS. Sú ferð er eingöngu fyrir þá sem eru skráðir í Húsfélagið og alls eru 40 manns skráðir. Óhætt er að fullyrða að starfsmenn Arnardals séu spenntir. Þetta verður skemmtilegt :)
Nánari upplýsingar um ferðina verða settar inn á síðuna síðar í dag.
Á miðvikudaginn er LOKAÐ Í ARNARDAL því þá er 1.maí sem er almennur frídagur.
Fimmtudaginn 2.maí ætla Brekkubæjar- og Heiðarskóli að frumsýna söngleikinn "Elskaðu Friðinn" í Bíóhöllinni og vonum við að sem flestir fari á það :)
Föstudaginn 3.maí verðum við í Dalnum með síðasta Arnardalsball vetrarins og köllum við það SUMARBALL ARNARDALS. Við hlökkum ótrúlega til þess.
Þið getið smellt á myndina til að sjá betur hvað sendur á auglýsingunni. |