Þjóðbraut 13

Sími 433-1250

arnardalur@akranes.is

 


 

Verkefnastjóri æskulýðs-

og forvarnarmála

Heiðrún Janusardóttir

Sími 433-1251

GSM 867-1075

heidrun@akranes.is

 

Deildarsjóri æskulýðs-

og forvarnarmála

Lúðvík Gunnarsson

Sími 433-1252

GSM 692-8920

ludvik@akranes.is

 

Beinn sími í starfsmanna-

herbergi er 433-1253


  

Vinnuskóli Akraness

Laugabraut 6

Einar Skúlason 

Verkefnastjóri

Sími 431-4145

einar.skulason@akranes.is

vinnuskoli@akranes.is

 



 

Viltu gerast áskrifandi?

6. maí 2013 11:45

Dagskrá vikunnar.

Þá er komið að síðustu vikunni í Arnardal veturinn 2012 - 2013.

 

Við ætlum að byrja á því að vera með ÚTILEIKI Í SKÓGRÆKTINNI í kvöld. Þá mætið þið bara upp í skógrækt kl. 20:00 og við skemmtum okkur saman í hinum og þessum leikjum enda mikið hægt að gera.

 

Á miðvikudaginn er LOKAUMFERÐ Í ALVÖRU. Þar er spennan mikil á toppnum enda til mikils að vinna. Að þessu sinni fær stigahæsta lið kvöldsins fær veglegri verðlaun en vanalega en auk þess mun 3 stigahæstu í heildarkeppninni fá sín verðlaun. Það verður því væntanlega rafmagnað andrúmsloft í Dalnum á miðvikudag.

 

Á föstudaginn er svo LOKASLÚTT ARNARDALS. Dagskráin á því er enn í vinnslu og setjum við inn upplýsingar um leið og skipulagið er klárt. Við lofum samt að hafa það skemmtilegt :)

 

Við vonumst auðvitað til að sjá sem flesta þessa síðustu daga fyrir sumarfrí.

 

Starfsfólk Arnardals.

 

 
29. apríl 2013 13:39

Upplýsingar um óvissuferð húsfélagsins.

Á morgun, þriðjudaginn 30.apríl, ætlum við í Arnardal að skella okkur í Óvissuferð. Ferðin stóð þeim til boða sem eru meðlimir í Húsfélag Arnardals og voru tæplega 40 meðlimir sem skráðu sig.

 

Í þessari frétt geta ferðalangarnir nálgast allar upplýsingar sem þarf fyrir ferðina.

 

Dagskrá:

  • Mæting í Arnardal kl. 17:00 þriðjudaginn 30.apríl.
  • Farið verður í leik utandyra um kl. 19:00 þannig að þið skuluð mæta í góðum fötum.
  • Við bjóðum upp á grillaðar pylsur og gos í hádeginu 1.maí.
  • Komið heim um miðjan dag miðvikudaginn 1.maí.
  • Annað varðandi dagskránna verður ekki gefið upp.

 

Hvað skal taka með:

  • Dýnu(helst einhverja sem lítið fer fyrir).
  • Svefnpoka og kodda.
  • Morgunmat fyrir miðvikudag.
  • Sundföt og handklæði.
  • Snyrtivörur :)
  • Tannkrem og tannbursta.
  • Góða úlpu.
  • Föt til skiptanna ef eitthvað skilda koma uppá.(Alls ekki koma með of mikið af fötum).
  • Góða skó(ekki bara spari- eða inniskó. Við verðum eitthvað úti)
  • Eitthvað gúmmelaði til að jappla á :)
  • Myndavél(sími dugar líka - Nauðsynlegt fyrir leik sem við förum í)

 

Það sem má taka með:

  • Spil.
  • Ferðaútvarp.
  • Þeir sem vilja ekki pylsu í hádeginu á miðvikudag geta komið með hamborgara ef þeir vilja. Ekki verður í boði að grilla steikur eða annað þess háttar.
  • Annað sniðugt sem ykkur dettur í hug.

 

Við minnum ykkur sérstaklega á að koma með góða skapið og skemmtilegheitin því þeir sem ekki koma með það verða sendir heim á hesti :)

 

VIÐ LEGGJUM MIKLA ÁHERSLU Á AÐ ÞIÐ SÉUÐ EKKI AÐ KOMA MEÐ OF MIKINN FARANGUR ÞAR SEM VIÐ GISTUM BARA 1 NÓTT. TAKIÐ BARA ÞAÐ HELSTA SEM TALIÐ ER UPP.

 

 
29. apríl 2013 11:43

Dagskrá vikunnar.

Það verður nóg um að vera hjá okkur þessa næst síðustu opnunarviku þessa vetrar. Að vísu er sumarið komið og óskum við ykkur til hamingju með það :)

 

Í kvöld, mánudag, ætlum við að skella okkur í VARÚLF í síðasta skiptið. Við viljum því hvetja alla sem hafa gaman af þessum leik til að mæta og skemmta sér vel með okkur. Rétt er að benda á að nemendur frá Lilleskole í Danmörku munu gista í Arnardal í kvöld og þið takið bara vel á móti þeim.

 

Á morgun, þriðjudag, munum við svo skella okkur í ÓVISSUFERÐ HÚSFÉLAGSINS. Sú ferð er eingöngu fyrir þá sem eru skráðir í Húsfélagið og alls eru 40 manns skráðir. Óhætt er að fullyrða að starfsmenn Arnardals séu spenntir. Þetta verður skemmtilegt :) 

Nánari upplýsingar um ferðina verða settar inn á síðuna síðar í dag.

 

Á miðvikudaginn er LOKAÐ Í ARNARDAL því þá er 1.maí sem er almennur frídagur.

 

Fimmtudaginn 2.maí ætla Brekkubæjar- og Heiðarskóli að frumsýna söngleikinn "Elskaðu Friðinn" í Bíóhöllinni og vonum við að sem flestir fari á það :)

 

Föstudaginn 3.maí verðum við í Dalnum með síðasta Arnardalsball vetrarins og köllum við það SUMARBALL ARNARDALS. Við hlökkum ótrúlega til þess.

Þið getið smellt á myndina til að sjá betur hvað sendur á auglýsingunni.

 

 
22. apríl 2013 10:44

Dagskrá vikunnar.

Í þessari ágætu viku ætlum við prófa nýjan leik sem gengur undir nafninu GÓLFTENNIS og ætlum við að skella okkur í það í kvöld, mánudag.  Leikurinn er mjög svipaður borðtennis nema í stað þess að spila á borði er spilað á gólfi. Við munum nota borðtennisspaða og kúlur og einhverskonar net. Leikurinn verður útskýrður nánar.

 

Á sama tíma geta félagar í Húsfélaginu skráð sig í ÓVISSUFERÐ HÚSFÉLAGSINS sem fer fram þriðjudaginn 30.apríl til fimmtudagsins 1.maí. Kostnaðurinn við ferðina er 1.500 kr. og þeir sem ætla með í þessa ferð þurfa að borga þann kostnað um leið og þeir skrá sig.

 

Á miðvikudaginn ætlum við að skella okkur í ÚTILEIKI. Til er fjöldinn allur af skemmtilegum leikjum og tilvalið að prófa einhverja þeirra ef veður leyfir. Ef veðrið er slæmt skellum við okkur í einhverja leiki innan Arnardals.

 

Á föstudag er komið að næstsíðustu umferðinni af "Í ALVÖRU". Spennan er mikil og nokkrir líklegir til að landa titlinum GÁFNALJÓS ARNARDALS.

 

Staðan í stigakeppninni er eftirfarandi:

1. sæti: Þórey Petra = 97 stig.

2.-4.sæti: Emilía, Jón Hjörvar & Sveinn Þór = 94 stig.

5.sæti: Silla = 93 stig.

 

Það er því óhætt að segja að það verði nóg um að vera í Dalnum þessa viku sem aðrar :)

 

Hlökkum til að sjá ykkur :)

 

Starfsfólk Arnardals.

 

 
15. apríl 2013 11:34

Dagskrá vikunnar.

Þessi vika verður í styttra lagi vegna Árshátíðar unglingadeildar sem fram fer á föstudag.

 

Við verðum með opið í kvöld og á miðvikudag eins og lög gera ráð fyrir :)

 

Í kvöld ætlum við að vera með SINGSTAR & TWISTER. Það ætti því að vera mikið fjör hjá okkur enda koma hingað bæði kattliðugir og raddfagrir gestir ;)

 

Á miðvikudag verðum við svo með SKYNDIBITA- OG VIDEOKVÖLD. Þá er planið að setja einhverja skemmtilega mynd á tjaldið í stóra salnum og raða svo upp borðum og stólum fyrir þá sem vilja koma með einhvern skyndibita og borða yfir myndinni og sófum fyrir þá sem vilja bara chilla yfir mynd. Þið getið komið með subway eða hamborgara eða jafnvel parað ykkur saman og pantað pizzu. Það verður allavegar gaman hvað svo sem þið ákveðið að gera.

 

Að lokum minnum við ykkur á það sem við nefndum fyrst... ÞAÐ ER LOKAÐ Á FÖSTUDAG VEGNA ÁRSHÁTÍÐAR UNGLINGADEILDAR.

 

Sjáumst hress :)

 

 
3. apríl 2013 12:24

Dagskrá vikunnar.

Í þessari viku verða einungis tvær opnanir, í kvöld og á föstudag.

 

Í kvöld ætlum við að skella okkur í VARÚLF enda nokkuð langt síðan við gripum í það skemmtilega blekkingarspil.

 

Á föstudaginn er svo komið að þriðju og jafnframt næstsíðustu umferðinni í hinum geysivinsæla spurningaleik "Í ALVÖRU". Við minnum á að baráttan er hörð í stigakeppninni en einnig geta allir sem mæta átt möguleika á verðlaunum kvöldsins.

 

Staðan í stigakeppninni er eftirfarandi:

1. - 2. sæti: Emilía Björg og Sveinn Þór = 69 stig.

3. sæti: Þórey Petra = 66 stig.

4. sæti: Jón Hjörvar = 65 stig.

5.sæti: Leó Snær = 64 stig.

 

Athugið að þetta er samanlögð staða eftir 2 keppnir. Í heildarkeppninni dregst lægsta skorið frá þannig að það getur ýmislegt átt eftir að breytast. Við stefnum á að taka a.m.k. 4 keppnir þannig að í lokin munu 3 bestu keppnirnar hjá hverjum og einum telja.

 

 
18. mars 2013 15:03

Dagskrá vikunnar.

Þá er ein skemmtilegasta vika ársins runnin upp...sjálf Árshátíðarvikan!!!

 

Við byrjum á því að vera með BAKSTUR í kvöld þar sem starfsmenn kvöldsins fara á kostum með ykkar aðstoð. Einnig verður hægt að kaupa miða á Árshátíðarballið. Miðinn kostar 500 kr.

 

Á miðvikudag ætlum við að vera með PEPP UPP fyrir árshátíðina og sýna ykkur síðustu tvö árshátíðarmyndbönd frá starfsmönnum. Þið sem hafið séð þessi myndbönd vitið hversu mikil meistaraverk um er að ræða þannig að þið sem ekki hafið séð þau megið ekki láta þau framhjá ykkur fara :) Á miðvikudag er síðasti séns til að kaupa miða á árshátíðarballið.

 

Á föstudag er svo komið að rúsínunni í pylsuendanum...ÁRSHÁTÍÐ ARNARDALS 2013.

 

Við hlökkum til að eiga með ykkur góðar stundir þessa vikuna.

 

Starfsmenn Arnardals.

 

 
11. mars 2013 13:00

Miðasala á Árshátíð Arnardals.

 
11. mars 2013 09:37

Dagskrá vikunnar.

5. mars 2013 11:15

Dagskrá vikunnar.

28. febrúar 2013 11:23

Upplýsingar um Samfesting 2013.

25. febrúar 2013 08:59

Dagskrá vikunnar.

18. febrúar 2013 10:52

Dagskrá vikunnar.

15. febrúar 2013 13:28

Föstudagsfjör í Arnardal.

13. febrúar 2013 14:42

Öskudagsböll á Akranesi kl. 16:00 í dag.

11. febrúar 2013 08:48

Dagskrá vikunnar.

8. febrúar 2013 10:36

Ball í Arnardal í kvöld.

6. febrúar 2013 09:54

Miðasala á Vesturlandskeppni Samfés.

5. febrúar 2013 11:33

Dagskrá vikunnar.

2. febrúar 2013 20:15

Miðasala á Samfestinginn.

31. janúar 2013 14:01

Hátónsbarkinn 2013 í kvöld.

28. janúar 2013 10:48

Dagskrá vikunnar.

21. janúar 2013 09:04

Dagskrá vikunnar.

17. janúar 2013 15:33

Arnardalsmeistaramótið í Bandý á morgun.


eldri fréttir



 


Ætlar þú á íþróttaballið?

Auðvitað maður!
14 atkvæði, 33,3%
Nei ég kemst því miður ekki maður!
28 atkvæði, 66,7%

Alls hafa 42 tekið þátt.


MYNDIR

 

VINNUSKÓLI

 

Kynfræðsluvefurinn

 

SAMFÉS-TV