|
Það er búið að vera mikið um að vera hjá okkur í Arnardal undanfarið og því á mörgu að taka í þessari frétt.
Til að byrja með verðum við að minnast á að BAKIR stóð uppi sem Arnardalsmeistari í Pool eftir harða baráttu við Auðunn Andra í úrslitaleik.
Þá bar Albert H. sigur úr býtum borðtennismótinu eftir þriggja manna úrslitakeppni gegn Katarínusi og Alexander Erni.
Loks er vert að minna á að Í KVÖLD FER FRAM ARNARDALSMEISTARAMÓTIÐ Í FUZZBALL.
Reglurnar eru þannig að þessu sinni að hvert lið verður að innihalda 1 strák og 1 stelpu. Þið parið ykkur saman og skráið ykkur svo með því að senda okkur póst á Facebook. Þegar þetta er skrifað hafa 9 lið skráð sig til leiks...við viljum endilega ná 10 liðum til að geta verið með tvo 10 liða riðla. |